Sjóvá hagnaðist um 1.138 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2026, samanborið við 479 milljóna króna tap á sama tímabili í fyrra. Afkoman skýrist meðal annars af viðsnúningi í fjárfestingastarfsemi félagsins, samkvæmt árshlutauppgjöri sem birt var í dag. Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta nam 1.534 milljónum króna á fyrri árshelmingi, samanborið við 1.511 milljónir árið áður. Hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta var 204 milljónir króna, samabborið við 1.564 milljóna króna tap á sama tímabili í fyrra. Samsett hlutfall var 91,2%, samanborið við 91,1% í fyrra. Á öðrum ársfjórðungi nam hagnaður félagsins 900 milljónum króna, samanborið við 60 milljónir á sama tímabili í fyrra. Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta var 744 milljónir króna og hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 405 milljónir. Samsett hlutfall á fjórðungnum var 91,5%. Afkoma af fjárfestingum fyrir fjármagnsliði og skatta var 764 milljónir króna og ávöxtun eigna í stýringu 1,4% sem er undir væntingum félagsins. „Verðbréfamarkaðir á Íslandi, og sér í lagi hlutabréfamarkaður, hafa átt undir högg að sækja á árinu, og raunar síðustu 4-5 ár. Árið hefur einkennst af versnandi efnahagshorfum og óvissu í alþjóðamálum ásamt því að afkoma okkar af vaxtarfélögum hérlendis hefur valdið vonbrigðum.“ segir Hermann Björnsson , forstjóri Sjóvá. Í tilkynningunni segir að horfur félagsins séu óbreyttar. Sjóvá gerir áfram ráð fyrir að afkoma af vátryggingastarfsemi fyrir skatta verði á bilinu 1,8 til 2,5 milljarðar króna á árinu 2026 og að samsett hlutfall verði á bilinu 93-95%.