Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skagi jók hlutafé Fossa um 300 milljónir

Read Full Article →

Fjármálafyrirtækið Skagi jók hlutafé dótturfyrirtækisins Fossa fjárfestingarbanka um 300 milljónir króna í lok júní, samkvæmt uppgjöri bankans sem var birt í gær. Innherji greindi fyrst frá. Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga, sagði á uppgjörsfundi í gær að félagið hafi ákveðið að nýta fjárhagslegan styrk samstæðunnar til að styðja við fyrirhugaðan vöxt á efnahag Fossa fjárfestingarbanka og aukna lánastarfsemi á næstu misserum. Fossar skiluðu tapi uppá 156 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við eins milljóna króna tap á sama tíma í fyrra. Afkoma fjárfestingabankans á öðrum ársfjórðungi var neikvæð um 146 milljónir króna. Hreinar rekstrartekjur fjárfestingarbankans drógust saman um fimmtung milli ára og námu 882 milljónum króna á fyrri árshelmingi. Þar munaði mestu um að hreinar þóknanatekjur drógust saman um ríflega 300 milljónir, eða um þriðjung, og nám 622 milljónum króna á tímabilinu. Haraldur sagði að hafa þyrfti í huga að nokkur einskiptiskostnaður féll til hjá Fossum vegna forstjóraskipta og annarra starfsmannabreytinga, eða sem nemur 75 milljónum króna. Sjá einnig For­stjóra­skipti hjá Fossum og hag­ræðing hjá Skaga Í afkomutilkynningu Skaga kemur fram að hagræðingaraðgerðir sem samstæðan réðst í á tímabilinu muni skila lægri kostnaði sem nemur um 300 milljónum króna á ársgrundvelli. Eignir Fossa námu 23 milljörðum króna í lok júní 2026. Eigið fé var um 3,3 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall Fossa var 27,1% í lok júní, samanborið við 24% í lok árs 2025. Eins og kom fram í uppgjöri Skaga, sem er einnig móðurfélag VÍS og Íslenskra verðbréfa, þá drógust tekjur samstæðunnar af fjármálastarfsemi á öðrum ársfjórðungi saman um 9% á milli ára og námu 666 milljónum króna. „Þessi samdráttur skýrist einkum af þungu árferði á mörkuðum og kemur það fram í lægri þóknanatekjum, sérstaklega í markaðsviðskiptum en að einhverju leyti í fyrirtækjaráðgjöf, ásamt neikvæðum fjármunatekjum hjá Fossum,“ sagði Haraldur. Sjá einnig Yfir 600 milljóna högg vegna Annata og Ocu­lis Skagi skilaði tæplega 1,8 milljörðum króna til hluthafa á fyrri árshelmingi í gegnum endurkaup eigin bréfa og arðgreiðslur. Þrátt fyrir þessar útgreiðslur er eiginfjárstaða félagsins áfram sterk og gjaldþolshlutfall samstæðu um 1,3 í lok tímabilsins, að teknu tilliti til fyrirséðra arðgreiðslna samkvæmt arðgreiðslustefnu. „Félagið býr því áfram yfir sterkri eiginfjárstöðu sem styður við áform um framtíðarvöxt og áframhaldandi arðsemi,“ segir í afkomutilkynningu Skaga.

Share this article