Andrew Bailey, seðlabankastjóri Englandsbanka, varar við aukinni áhættu í fjármálakerfinu og segir skuldsetningu á mörkuðum vera sérstakt áhyggjuefni. Bailey lét ummælin falla þegar hann kom fyrir fjárlaganefnd breska þingsins, Treasury Select Committee fyrr í dag, Í upphafi fundarins sagði hann að fjármálaáhætta hefði aukist, meðal annars vegna þróunar í heimsbúskapnum og sérstaklega vegna stöðunnar fyrir botni Persaflóa. Hann nefndi einnig áhrif gervigreindar sem þátt sem seðlabankinn fylgist náið með. Bailey sagði að aukin notkun lánsfjár hjá vogunarsjóðum og öðrum fjárfestingarsjóðum gæti magnað sveiflur á mörkuðum. „Við stöndum frammi fyrir vandamáli tengdu gírun á fjármálamörkuðum,“ sagði Bailey við þingmenn. Með gírun er átt við að fjárfestar noti lánsfé til að stækka stöður sínar og auka mögulega ávöxtun. Sama aðferð getur þó einnig magnað tap ef markaðir þróast gegn þeim. Bailey sagði að á síðustu mánuðum hefði aukin gírun sést bæði á hlutabréfamörkuðum og í kauphallarsjóðum, eða ETF-sjóðum. Slíkir sjóðir eru meðal annars notaðir af almennum fjárfestum til að fjárfesta í ákveðnum mörkuðum, löndum eða atvinnugreinum. Hann sagði að stjórnvöld og eftirlitsaðilar þyrftu að meta hvort herða þyrfti reglur um slíka skuldsetningu. Spurningin væri hvort bregðast ætti við innan bankaregluverksins eða markaðsregluverksins. Bailey sagðist sjálfur telja eðlilegra að takast á við vandann í gegnum reglur um fjármálamarkaði fremur en bankakerfið. Seðlabankastjórinn ræddi einnig þróun eldsneytisverðs. Hann sagði þingmönnum að verð á bensíni og dísilolíu hefði ekki lækkað jafn hratt og heimsmarkaðsverð á hráolíu eftir að dregið hafði úr spennu í Mið-Austurlöndum á síðustu mánuðum. Bailey benti á að verð á unnum olíuvörum, þar á meðal bensíni og dísilolíu, hefði ekki lækkað jafn mikið og verð á hráolíu. Samtök bifreiðaeigenda í Bretlandi, RAC og AA, greindu jafnframt frá því á mánudag að eldsneytisverð væri aftur farið að hækka í kjölfar nýrrar spennu í Mið-Austurlöndum. Bailey undirstrikaði einnig mikilvægi trúverðugrar fjármálastefnu fyrir stöðugleika á mörkuðum. Hann sagði stærstu sveiflurnar á fjármálamörkuðum nú fyrst og fremst ráðast af alþjóðlegum þáttum, en að staða Bretlands nyti stuðnings frá peningalegum stöðugleika, fjármálastöðugleika og ramma ríkisfjármálanna.