Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Býður fjár­festum að taka stöðu gegn einkalána­sjóðum

Read Full Article →

Stórir fjár­festingar­bankar á Wall Street eru farnir að bjóða við­skipti með af­leiðu­samninga sem gera fjár­festum kleift að taka stöðu á versnandi horfum á markaði fyrir lán­veitingar utan hefðbundins banka­kerfis, svo­nefndum einkalána­markaði (e. private credit). Sam­kvæmt um­fjöllun Financial Times hafa meðal annars JP­Morgan Chase og Barcla­ys hafið við­skipti með skulda­tryggingar (e. credit default swaps, CDS) á sjóði á vegum Apollo Global, Ares Mana­gement og Black­stone. Um er að ræða sjóði sem starfa á sviði einkalána, þar sem lán eru veitt utan hefðbundinna banka og fjár­mögnuð af sér­hæfðum fjár­festinga­sjóðum. Skulda­trygging er fjár­mála­af­leiða sem notuð er til að flytja eða verð­leggja útlánaáhættu. Kaupandi samningsins greiðir ið­gjald gegn því að fá bætur ef undir­liggjandi skuldari lendir í van­skilum eða öðru skil­greindu greiðslu­falli. Samningana má því annars vegar nota til að verjast útlánaáhættu og hins vegar til að veðja á að fjár­hags­staða eða áhættu­mat versni. Þetta er sama afleiða og varð áberandi á alþjóð­legum fjár­málamörkuðum á árunum fyrir fjár­mála­hrunið, þegar skulda­tryggingaálag var einn helsti mæli­kvarðinn á það hvernig markaðurinn verðlagði greiðslu­vanda fyrir­tækja og fjár­mála­fyrir­tækja. Nýju samningarnir gera fjár­festum kleift að taka beina stöðu á þróun áhættu hjá stórum einkalána­sjóðum, þótt sjóðirnir sjálfir séu ekki skráðir á markað. Ekki þarf endi­lega að koma til eigin­legra van­skila til að slík staða skili ávinningi. Ef markaðurinn fer að meta áhættuna meiri hækkar skulda­tryggingaálagið að jafnaði og verðmæti samninganna getur aukist í samræmi við það. Að sögn FT hafa fleiri bankar, þar á meðal Morgan Stanl­ey og Citigroup, einnig boðið við­skipti með samningana, þótt um­svifin hafi enn sem komið er verið tak­mörkuð. Þróunin kemur á viðkvæmum tíma fyrir einkalána­markaðinn, sem hefur vaxið hratt á undan­förnum árum og er nú metinn á um tvö þúsund milljarða Bandaríkja­dala. Að undan­förnu hafa fjár­festar í auknum mæli óskað eftir inn­lausnum úr sjóðum á þessum markaði, á sama tíma og fjár­mögnunar­kostnaður hefur hækkað eftir því sem bankar hafa hert lánskjör gagn­vart sjóðunum. Eftir­lit­saðilar hafa jafn­framt beint sjónum í vaxandi mæli að tengslum banka og einkalána­sjóða og þeirri kerfisáhættu sem getur skapast þegar þessir aðilar fléttast æ meira saman. Aukin virkni á markaðnum virðist einnig tengjast nýrri vísitölu frá S&P Global, CDX Financials, sem nær meðal annars til sjóða tengdra Apollo, Black­stone og Ares, auk banka, vá­tryggingafélaga, fast­eignafélaga og annarra fjár­mála­fyrir­tækja. Eftir að vísi­talan var sett á lag­girnar hófu bankar að sögn FT virkari við­skipti með skulda­tryggingar á undir­liggjandi sjóðum. Við­skiptin snúast þó ekki aðeins um að veðja á áföll í einkalána­geiranum. Sumir markaðsaðilar nýta samningana einnig til að eiga við­skipti með verðmun milli skulda­bréfa sjóðanna og skulda­tryggingaálags þeirra. Slík við­skipti byggja á því að hagnast á því hvort munurinn víkki eða þrengist, fremur en á ein­faldri af­stöðu til þess hvort van­skil verði eða ekki. Sam­kvæmt FT hafa skulda­tryggingaálög á alla þrjá sjóðina lækkað frá því við­skiptin hófust, sem bendir til þess að markaðurinn hafi að minnsta kosti í bili ekki verðlagt yfir­vofandi veru­lega van­skila­hættu. Greiningar­deild JP­Morgan taldi á fimmtu­dag að álag á skulda­tryggingum tengdum Bcred-sjóði Black­stone gæti lækkað enn frekar. Á sama tíma hafa sumir fjár­festar tekið skort­stöður á skulda­bréfum út­gefnum af félögum á einkalána­markaði á meðan aðrir telja verð­fallið hafa gengið of langt og skoða nú kaup. Það undir­strikar þá óvissu sem ríkir um næstu skref í geiranum. Fjárfestingabankar vestanhafs hafa um nokkurt skeið unnið að því að þróa leiðir fyrir við­skipta­vini sína til að taka neikvæða stöðu á einkalána­markaðnum. Þar horfa fjár­festar meðal annars til þess að stór hluti lán­veitinga sjóðanna hefur farið til hug­búnaðar­fyrir­tækja í eigu einka­fjár­festinga­sjóða. Sumir óttast að fram­farir í gervi­greind geti raskað rekstrar­for­sendum slíkra fyrir­tækja og aukið þar með líkur á greiðslu­vanda. Með til­komu skulda­trygginga á einkalána­sjóði virðist markaðurinn því vera að taka nýtt skref. Áhætta í þessum geira er í vaxandi mæli orðin sjálf­stætt viðfangs­efni af­leiðu­við­skipta, líkt og lengi hefur tíðkast á mörkuðum fyrir fyrir­tækja­skulda­bréf og aðrar lána­tengdar fjár­mála­afurðir. Það kann að dýpka markaðinn og auka mögu­leika fjár­festa til áhættustýringar, en um leið gera verð­myndun og sveiflur sýni­legri þegar á reynir.

Share this article