Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skuldir úr stærstu skuld­settu yfir­tökunni komnar í sölu

Read Full Article →

Fjár­festingar­bankar á Wall Street eru byrjaðir að dreifa til fjár­festa um 18 milljörðum dala af skuldum sem tengdust yfir­töku á tölvu­leikja­fram­leiðandanum Electronic Arts sem lauk í fyrra. Yfir­takan nam alls 55 milljörðum dala og er ein stærsta skuldsetta yfirtaka sem ráðist hefur verið í, samkvæmt Financial Times. Um er að ræða lán og há­vaxta­skulda­bréf sem bankarnir lögðu til, eða ábyrgðust, til að fjár­magna kaupin þegar gengið var frá við­skiptunum. Nú eru þeir að koma þessum skulda­gerningum áfram í hendur fjár­festa, meðal annars til að draga úr áhættu á eigin bókum og losa fjár­magn fyrir önnur við­skipti og frekari lán­veitingar. Sam­kvæmt Financial Times hafa bankar undir for­ystu JP­Morgan þegar sett af stað sölu á skuld­settum lánum að fjár­hæð 5,75 milljarðar dala í tveimur gjald­miðlum. Á næstu dögum er svo stefnt að út­gáfu há­vaxta­skulda­bréfa fyrir um 9 milljarða dala. Þar að auki er hluti fjár­mögnunarinnar í formi sér­staks lána­pakka sem bankarnir hafa þegar haldið á eigin bókum frá því fyrr á árinu. Slík við­skipti eru grannt vöktuð á markaði, því þau gefa vís­bendingu um hversu auðvelt eða erfitt sé fyrir banka að færa áhættuna af stórum skuld­settum yfir­tökum yfir til fjár­festa. Það skiptir máli á sama tíma og órói hefur aukist á lána­mörkuðum vegna stríðsins við Íran og áhyggna af áhrifum gervi­greindar á tækni­fyrir­tæki. Í um­fjöllun FT kemur fram að bankarnir vilji síður sitja lengi uppi með þessar skuldir á eigin efna­hags­reikningi. Með því að dreifa þeim áfram til fjár­festa geta þeir dregið úr eigin áhættu, bætt lausa­fjár­stöðu og skapað sér svigrúm til að taka þátt í nýjum við­skiptum. Electronic Arts var tekið af markaði af fjár­festa­hópi undir for­ystu Sil­ver Lake, Affinity Partners og þjóðar­sjóði Sádi-Arabíu. Fjár­festar hafa þó verið mis­jafn­lega opnir fyrir skuldunum, þar sem sumir telja að áhætta tengd tækni­geiranum og mögu­legri röskun af völdum gervi­greindar sé enn of mikil. EA og ráðgjafar félagsins hafa hins vegar lagt áherslu á að félagið standi öðru­vísi en hefðbundin hug­búnaðar­fyrir­tæki, meðal annars vegna sterkra vöru­merkja, leyfis­samninga og endur­tekinna tekna af vinsælum leikja­flokkum.

Share this article