Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skuldafjall blasir við nýjum fjölmiðlarisa

Read Full Article →

Sameinað félag Paramount og Warner Bros. Discovery mun hefja starfsemi með nær 80 milljarða dala skuldabyrði þegar 81 milljarðs dala samruni félaganna gengur í gegn. Frá þessu greinir Wall Street Journal . Greinendur telja skuldahlutfall hins nýja fjölmiðlarisa óvenju hátt og vara við því að fjárhagsleg staða félagsins geti takmarkað svigrúm þess til fjárfestinga. Gert er ráð fyrir að nettóskuldir nemi um 6,5-földum rekstrarhagnaði fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) við lok samrunans. Greiningarfyrirtækið MoffettNathanson hefur lýst skuldabyrðinni sem „gríðarlegri“ og telur áform félagsins um að lækka skuldahlutfallið niður í þrefaldan EBITDA á þremur árum of bjartsýn. Forstjórinn David Ellison hefur lagt áherslu á að samruninn byggist á vexti fremur en niðurskurði og heitið því að hvorki verði dregið úr fjárfestingu í efni né seldar eignir til að greiða niður skuldir. Jafnframt er stefnt að sex milljarða dala samlegðaráhrifum með samþættingu rekstrar og streymisþjónusta. Verkefnið verður þó vandasamt. Stór hluti tekna hins sameinaða félags kemur enn frá hefðbundnum sjónvarpsrekstri, sem hefur verið undir þrýstingi vegna fækkunar áskrifenda og samdráttar í auglýsingatekjum. Því telja greinendur að leiðin að sjálfbærri skuldalækkun geti orðið lengri og erfiðari en stjórnendur gera ráð fyrir.

Share this article