Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús endaði jafn í 25. sæti á German Challenge powered by VcG mótinu sem lauk í gær. Mótið er hluti af HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu. Haraldur lék hringina fjóra á Wittelsbacher Golfclub-vellinum í Þýskalandi á samtals níu höggum undir pari. Hann komst auðveldlega í gegnum niðurskurðinn en hann var á samtals þremur höggum undir pari eftir tvo hringi. Þriðja hringinn fór Haraldur á tveimur höggum undir pari. Hann lék svo sinn besta hring á mótinu á lokadeginum. Hann fékk fjóra fugla á hringnum og engan skolla og kom í hús á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari. Þetta var besti árangur Haraldar á þessu keppnistímabili. Hann fór upp um 28 sæti á stigalista mótaraðarinnar og situr í 143. sæti.