Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gunnlaugur og Haraldur komust ekki á Opna breska

Read Full Article →

Gunnlaugur Árni Sveinsson og Haraldur Franklín Magnús kepptu í dag á lokaúrtökumóti fyrir Opna breska meistaramótið í golfi. Haraldur endaði í 37. sæti á +8 yfir pari. Hann lék fyrri hringinn á 81 höggi og þann seinni á 71 höggi, einu undir pari. Gunnlaugur endaði í 37. sæti á +1 yfir pari. Hann lék fyrri hringinn á 75 höggum og seinni á 70 höggum. Fimm efstu kylfingar á fjórum úrtökumótum fara áfram á mótið. Alls léku 288 kylfingar, 72 á hverjum velli, um 20 laus sæti á mótinu. Kylfingar fara tvo hringi. Haraldur endaði í 37. sæti Haraldur lék á Dundonald Links vellinum í Skotlandi og varð í 37. sæti á 8 yfir pari. Hann lék fyrsta hring á +9 yfir, 81 höggi. Þann seinni lék hann á einu undir pari, 71 höggi. -2 undir pari þurfti til að fara í umspil um sæti á mótinu. Staðan hjá Gunnlaugi Gunnlaugur lék á West Lancashire vellinum á Englandi og varð í 37. sæti á +1 yfir pari. Hann lék fyrri hringinn á 75 höggum og seinni á 70 höggum. Gunnlaugur var á +3 yfir pari eftir fyrri hring og lék hann á 75 höggum. Gunnlaugur lék vel á seinni hring og kláraði hann á 70 höggum, eða tveimur undir pari. Þeir einu Gunnlaugur keppti nýverið á US Open og varð þar með fyrsti Íslendingurinn til að keppa á móti. Hann og Haraldur eru þeir einu sem hafa leikið á risamóti en Haraldur tók þátt í Opna breska árið 2018 á Carnoustie.

Share this article