Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Svona er staðan hjá Gunnlaugi og Haraldi í lokaúrtökumótinu

Read Full Article →

Gunnlaugur Árni Sveinsson og Haraldur Franklín Magnús standa í ströngu í dag á lokaúrtökumóti fyrir Opna breska meistaramótið í golfi. Fimm efstu kylfingar á fjórum úrtökumótum fara áfram á mótið. Alls leika 288 kylfingar, 72 á hverjum velli, um 20 laus sæti á mótinu. Kylfingar fara tvo hringi. Staðan hjá Haraldi Haraldur leikur á Dundonald Links vellinum í Skotlandi og er á +10 á 4. holu á öðrum hring. Hann lék fyrsta hring á +9 yfir, 81 höggi. Efsti maður er á -6 eftir fjórar holur á öðrum hring, en sem stendur dugar -3 inn á mótið. Staðan hjá Gunnlaugi Gunnlaugur leikur á West Lancashire vellinum á Englandi. Hann er á +3 yfir pari eftir fyrri hring og hefur leik á seinni hring klukkan 13:20. Hann lék á 75 höggum. Efsti maður er -8 eftir tvær holur á öðrum hring. Sem stendur dugar -5 inn á mótið. Þeir einu Gunnlaugur keppti nýverið á US Open og varð þar með fyrsti Íslendingurinn til að keppa á móti. Hann og Haraldur eru þeir einu sem hafa leikið á risamóti en Haraldur tók þátt í Opna breska árið 2018 á Carnoustie.

Share this article