Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Það reyndist pabbanum erfitt þegar boltinn týndist

Read Full Article →

Gunnlaugur Árni Sveinsson heldur keppni áfram á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi í dag. Hann náði að klára fjórtán holur á fyrsta hring í gær en síðustu fjórar eru spilaðar í dag. Gunnlaugur er á +9 höggum eftir 14 holur en hann lauk keppni í gærkvöldi á fugli á 14. holu. Sveinn Kristinn Ögmundsson, faðir Gunnlaugs, segir það gott að hafa klárað gærkvöldið á góðu skori. „Þótt það hefði verið best að klára 18 holur í gær þá held ég að það hafi verið gott að klára á fugli í gær. Þetta var búið að vera aðeins erfitt en hann kom sterkur inn á 14 og tók fugl. Svo er bara um að gera að halda áfram núna og taka nokkra fugla og laga aðeins töfluna.“ Völlurinn er sérlega erfiður og sem dæmi um það eru aðeins 17 kylfingar undir pari eftir fyrsta hring. Niðurskurðurinn verður markaður einhvers staðar um 65 kylfinga. Það miðast þá sem stendur við 2-3 högg yfir pari sem stendur. Erfitt þegar boltinn týndist Sjötta holan reyndist Gunnlaugi erfið og þar týndi hann boltanum. „Það var aðeins erfitt, ég skal alveg viðurkenna það. Hann var búinn að vera aðeins í brasi af teig, sérstaklega með driverinn. Það var aðeins erfitt að sjá hann fara þarna út fyrir á sjöttu holu. Það var smá skellur að fá þessa áttu. „Hann var heilt yfir að spila vel. Það þarf aðeins að stilla teighöggin fyrir daginn. Þá er aldrei að vita hvað gerist.“ Sveinn segir að Gunnlaugur hafi verið hress eftir daginn en viljað ná betra skori. „Hann er hérna fyrst og fremst til að njóta, taka eitthvað út úr þessu og læra. Mögulega að reyna að komast í gegnum niðurskurð.“

Share this article