Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lærði helling um sjálfan sig

Read Full Article →

Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson er kominn til Íslands í örfáa daga eftir að hafa lokið keppni á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Hann keppir á næstunni á úrtökumóti fyrir Opna breska mótið. En hvernig kemur hann undan átökum helgarinnar? „Ég er kominn núna heim og það er mikilvægt að horfa yfir vikuna og draga lærdóm af henni,“ segir Gunnlaugur Árni sem segist hafa notað mánudaginn í að gera upp Opna bandaríska meistaramótið og dagana á undan því með þjálfurum sínum og öðrum sem unnu í kringum hann. Gunnlaugur Árni Sveinsson er kominn heim eftir sögulega þátttöku á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Hann segir reynsluna hafa kennt sér mikið þrátt fyrir erfiða keppni. Næst á dagskrá er úrtökumót fyrir Opna breska meistaramótið. „Ég vil upplifa augnablikin aftur að fara á svona mót og vera á þeim, þannig að þá er þetta lykilatriði að læra af þessu þannig að það þroski mig jafnvel um nokkur ár hvert skipti. Það skiptir mestu máli.“ Spennufall eftir mótið En er Gunnlaugur ekkert þreyttur eftir alla athyglina, umfjöllunina og álagið sem fylgdi því að spila golf á svona stóru sviði? „Ég þurfti að fást mikið við spennu og vinna úr henni og adrenalíninu alla vikuna. Svo var spennufall eftir mótið og ég er enn að vinna úr því nú þegar ég er kominn heim. Það er bara eðlilegt, enda er þetta löng og spennandi vika og mikið áreiti. En ég myndi aldrei kvarta yfir því. Draumurinn var að komast á svona mót og því fylgir þá þetta allt saman. Ef þú kvartar yfir því þá er maður ekki á réttum stað. Álagið og áreitið er allt hluti af þessu og ég reyni bara að horfa á þetta allt á jákvæðan hátt og njóta,“ segir Gunnlaugur Árni. En hvað lærði hann mest á þátttöku sinni á þessu risamóti? „Rosalega mikið hvernig maður á að haga vikunni. Hvenær maður á að spila æfingahring með ákveðnu fólki og svo líka bara að vera í þessar umgjörð. Hvert á að fara þegar maður mætir á mótsstað og skráir þig inn og svona. Bara allt utanumhaldið. En svo lærði ég líka bara helling um sjálfan mig, tilfinningar, spennustigið mitt og svona hluti sem ég hefði ekki getað undirbúið mig fyrir á þessu móti,“ segir kylfingurinn ungi sem segist þakklátur fyrir að hafa komist í þessa stöðu og vonast til að geta tekið reynsluna með sér inn í framtíðina. Verður að kyngja stoltinu og horfa hlutina í stærra samhengi Gunnlaugur Árni lenti í erfiðum aðstæðum á mótinu, sérstaklega fyrri keppnisdaginn þar sem vindur var mikill sem hafði áhrif á keppni. Þó hann hefði farið með hófstilltar væntingar inn í mótið fylgdi því blendnar tilfinningar að hafa endað meðal neðstu manna, þó hann hefði verið fyrsti íslenski karlinn til að keppa á Opna bandaríska meistaramótinu. „Sem keppnismaður er maður alltaf pirraður þegar maður spilar ekki vel og ekki eins og maður vildi. En í lok dags er þetta bara þannig að ég þarf að horfa á heildar myndina. Engum langar þetta meira en mér að komast eins langt og ég get. Þannig að ég veit að ég þarf bara að vera þolinmóður. Ég er ungur og á vonandi mörg ár eftir í þessu. Þannig ef ég tek ekki reynsluna og lærdóminn núna að þá mun ég bara hitta vegginn eða fá tuskuna í andlitið seinna. En ég var að einhverju leyti pirraður, en í svona aðstæðum verður maður bara að kyngja stoltinu og reyna að horfa á þetta í stærra samhengi.“ Reynir næst við Opna breska meistaramótið Gunnlaugur fær nú örfáa daga á Íslandi en svo er mótadagskráin þétt. Hann reynir meðal annars að komast inn á annað risamót því hann keppir á úrtökumóti fyrir Opna breska meistaramótið á næstu dögum. „Það er sama fyrirkomulag þar og þegar ég komst inn á Opna bandaríska. Maður þarf að eiga frábæran langan dag þar sem spilaðar eru 36 holur. En ég reyni ekkert að hugsa um niðurstöðuna mikið. Þetta er bara golf og ég er bara að hugsa um ferlið sem ég er í og niðurstaðan er svo bara einhver,“ segir Gunnlaugur Árni sem fer eftir úrtökumótið til Írlands til að keppa í Palmer bikarnum. Svo keppir hann á EM með íslenska landsliðinu í kjölfarið. Gunnlaugur virðist vera mjög meðvitaður um að vera með báðar fætur á jörðinni og taka rétt skref á ferlinum. „Já, það eru bara ákveðnir hlutir sem maður getur stjórnað sjálfur. Eins og ég nefndi áðan að þá langar mig alveg rosalega mikið að komast á stærsta sviðið og eiga séns á því að vinna þessi risamót. En þegar allt kemur til alls að þá eru það ekki við sjálf sem stjórnum því hvort við vinnum mót eða ekki. Það eina sem við stýrum eru okkar eigin vinnubrögð, ákvarðanir og slíkt. Ef ég geri það með mínum bestu tökum og með fólkinu í kringum mig að þá gerist eitthvað sem ég vona innilega að verði eitthvað spennandi í framtíðinni,“ segir kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson.

Share this article