Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Passar sig bara á því að hafa gaman

Read Full Article →

Gunnlaugur Árni Sveinsson er fyrsti íslenski karlinn til þess að komast inn á Opna bandaríska meistaramótið í golfi og einungis annar til þess að komast inn á risamót. Haraldur Franklín Magnús komst inn á Opna breska meistaramótið árið 2018. „Eina sem maður þarf að passa er bara að hafa gaman,“ sagði Gunnlaugur Árni eftir æfingu sína á Shinnecock Hills golfvellinum í gær hvar mótið fer fram. „Af hverju er maður að þessu ef það er ekki staðan? Sigmundur Einar Másson er í þjálfarateymi Gunnlaugs Árna segir að undirbúningurinn skipti höfuðmáli og það sé það sem kylfingurinn og teymið séu búinn að einbeita sér að síðustu daga. Flestar stórstjörnur golfheimsins keppa á móti og Gunnlaugur Árni hitti til að mynda Justin Rose, sem vann Opna bandaríska 2013, og ræddi við hann um víkingaklappið.

Share this article