Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gunnlaugur Árni prýðir Golf Digest

Read Full Article →

Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur verið í brennidepli meðal kylfinga og golfáhugamanna undanfarna daga en hann er fyrsti íslenski karlkylfingurinn til að leika á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi sem fer fram í Shannecock Hills í New York. Hann sagði í samtali við Golf Digest að hann hefði fyrst kynnst íþróttinni 12 ára gamall þegar hann horfði á Masters-mótið með föður sínum. Eftir að hafa gengið til liðs við GKG sem unglingur fór áhuginn að vaxa enn meira. Í dag spilar Gunnlaugur Árni með Louisiana State University þar sem hann hefur vakið mikla athygli, meðal annars með sigri á Fallen Oak Collegiate Invitational og þátttöku í Arnold Palmer Cup. Sjá einnig Ís­lensk golftækni á Bandaríkja­markað Golf Digest minnist einnig á allan þann stuðning sem Gunnlaugur Árni hefur fengið, bæði frá fjölskyldunni og GKG, og segir það hafa spilað mikilvægt hlutverk í velgengni unga kylfingsins.

Share this article