Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Stígur ungur inn á stóra sviðið

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 18.6.2026 | 18:01 Stígur ungur inn á stóra sviðið Gunnlaugur Árni slær af teig. Andrés fylgist íbygginn með. Ljósmynd/GSÍ Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Ungur Garðbæingur, Gunnlaugur Árni Sveinsson, ritar nýjan kafla í íþróttasögu okkar Íslendinga í Bandaríkjunum í dag þegar hann keppir á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi, US Open. Er hann fyrsti íslenski karlmaðurinn sem öðlast keppnisrétt í mótinu en áður hafa Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni keppt á mótinu. Í þessari umfjöllun verður reynt að varpa ljósi á það hver Gunnlaugur Árni er og hvaða slóð hann hefur fetað til að komast inn á eitt stærsta golfmót í heimi. Jafnvel þótt hann hafi verið álitinn afar efnilegur kylfingur, vegna árangurs síns í háskólagolfinu í Bandaríkjunum, kom engu að síður á óvart að honum tækist að vinna sér inn keppnisrétt á Opna bandaríska mótinu á dögunum. Einfaldlega vegna þess hversu ungur hann er, einungis tvítugur. Gunnlaugur Árni er enn þá áhugamaður í íþróttinni og segja mætti að hann eigi allan keppnisferilinn fram undan. Eða svo gott sem. Í LSU-háskólanum nemur hann íþróttastjórnun. Ekki aðrir að ýta honum áfram Gunnlaugur Árni ólst upp í Garðabænum og er sonur hjónanna Höllu Árnadóttur og Sveins Kristins Ögmundssonar. Hann á bróður sem er þremur árum eldri, Ögmund Árna. Hann komst ungur í kynni við golfíþróttina en fór sjálfur að stunda hana markvisst í barna-og unglingastarfi GKG um 10 ára aldurinn. Þjálfari hans, Andrés Jón Davíðsson, kynntist Gunnlaugi Árna þegar hann var á unglingsaldri eða í 10. bekk grunnskóla. Andrés segist hafa komist fljótt að því að Gunnlaugur Árni hefði rétta hugarfarið til að ná langt. „Hann hefur sjálfur verið driffjöðurin í þessu ferli. Það eru ekki foreldrarnir eða við þjálfararnir sem erum að ýta honum áfram. Við í teyminu í kringum hann erum til staðar til að hjálpa en íþróttamaðurinn þarf sjálfur að kunna að nýta sér þekkingu og reynslu annarra,“ segir Andrés og nefnir nokkur atriði sem skýra að nokkru leyti hversu langt Gunnlaugur Árni hefur náð. „Hann býr yfir alla vega þremur þáttum sem þarf til að ná árangri. Í fyrsta lagi þá þarf íþróttamaðurinn að búa yfir ákveðnum krafti til þess að vakna alla daga og vilja fara á æfingu. Í öðru lagi þarf ástríðan fyrir íþróttinni að vera til staðar til að standa í þessu allan sólarhringinn. Í þriðja lagi þarf svakalega þrautseigju og seiglu því vegurinn er ekki alltaf beinn og breiður.“ Lagði próf fyrir unglinginn Skömmu eftir að samstarf þeirra hófst lagði Andrés próf fyrir Gunnlaug Árna án þess að Gunnlaugur vissi af því. Andrés vildi kanna hversu mikinn metnað Gunnlaugur hefði og hversu mikið hann vildi leggja á sig til að ná árangri. Andrés tjáði honum að lykilatriði væri að fara á aukaæfingar hjá Gauta Grétarssyni, sjúkra- og styrktarþjálfara, sem hefur meðal annars sérhæft sig í að vinna með kylfinga. Andrés og Gauti hafa lengi unnið saman og Andrés bað Gauta um að svara ekki tölvupósti frá Gunnlaugi Árna. Gunnlaugur Árni kom þá til Andrésar og kvartaði yfir því að Gauti svaraði ekki tölvupóstinum. „Hvað gerirðu þá?“ spurði Andrés. „Ég reyni aftur,“ svaraði Gunnlaugur. Ekki gekk nú fyrsti pósturinn vel, bendir Andrés á. Þá sagðist Gunnlaugur ætla að hringja sem hann reyndi en það gekk ekki heldur. Allt hluti af þeim fyrirætlunum Andrésar að finna út hversu mikinn áhuga unglingurinn hefði á því að bæta sig. Svo fór að Gunnlaugur Árni lagði ekki árar í bát heldur fór í vesturbæinn og hafði uppi á Gauta á vinnustaðnum eftir ábendingar frá Andrési um hvenær mögulegt væri að hitta á Gauta. Úr varð gott samstarf þeirra og Andrés fékk þau svör sem hann leitaði að. Á blaðamannafundi í vikunni fyrir Opna bandaríska nefndi Gunnlaugur Árni að hann hefði teymi á bak við sig. Í samráði við GKG bjó Andrés til teymið og hann er eins konar teymisstjóri en ekki bara þjálfari. Í teyminu eru menn bæði á Íslandi, en einnig í Bandaríkjunum, þar sem kylfingurinn er í námi, en með árangri sínum í háskólagolfinu hefur Gunnlaugur náð ofarlega á heimslista áhugamanna. Andrés segir að bæði GKG og GSÍ hafi einnig staðið vel við bakið á kylfingnum. Sterkt bakland fagmanna „Nú þegar Gulli hefur náð þessum árangri þá gera sér fáir grein fyrir því hversu margir hafa komið að því að aðstoða hann. Við köllum þetta Total Player og þar liggja miklar pælingar að baki. Sigmundur Einar Másson sér um tölfræðina og þess háttar og áður hef ég minnst á Gauta. Hallur Hallsson íþróttasálfræðingur kom inn í teymið og Ólafur Loftsson vinnur einnig með okkur. Í Bandaríkjunum er Bretinn Jake Amos þjálfari skólaliðsins og ég hef leitað til Liams Mucklovs ef á þarf að halda en hann er á lista yfir 100 bestu golfkennara í Bandaríkjunum. Þá er danskur umboðsmaður, Mark Haastrup, kominn í teymið og þar er einnig sjúkraþjálfari. Það eru svo margir sem hafa lagt eitthvað til málanna en líklega eru það hátt í 20 manns. Foreldrar Gulla fá auðvitað að fylgjast með og gera það sem við óskum eftir. Þau hafa verið til fyrirmyndar í þessu ferli,“ útskýrir Andrés en undirstrikar að þótt nauðsynlegt sé að íþróttamaðurinn fái réttu leiðsögnina þá geti fagmennirnir í teyminu einungis hjálpað til. „Dæmið gengur ekki upp nema íþróttamaðurinn sé móttækilegur fyrir þessu. Sýni æðruleysi og geri það sem fyrir hann er lagt. Það er svo mikilvægt að Gulli treysti ferlinu og treysti því sem aðrir eru að hjálpa honum með.“ Hvernig get ég orðið betri en Birgir Leifur? Birgir mikilvæg fyrirmynd Árið 2020 var golfþjálfarinn Andrés Jón Davíðsson með unglinga við æfingar á æfingasvæðinu hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Birgir Leifur Hafþórsson sjöfaldur Íslandsmeistari átti leið um en Andrés þjálfaði Birgi þegar Birgir Leifur var atvinnumaður á Evrópumótaröðinni á sínum tíma. Andrés bað Birgi um að slá nokkur högg fyrir unglingana. Birgir Leifur fór úr jakkanum og sló nokkur frábær högg enda hafa fáir, ef nokkrir, á Íslandi haft jafn gott vald á golfkylfunni og Birgir Leifur. Hann sló til að mynda rúmlega 300 metra högg með dræver fyrir hina ungu iðkendur sem fylgdust opinmynntir með. Einn unglinganna vatt sér upp að Andrési síðar um daginn og spurði hvort hann mætti eiga orð við Andrés. Var það auðsótt. Þá spurði hinn 15 ára gamli iðkandi: „Hvernig get ég orðið betri en Birgir Leifur?“ Þessi ungi metnaðarfulli kylfingur var Gunnlaugur Árni Sveinsson sem tíar golfboltann upp í dag á Opna bandaríska meistaramótinu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mikil sala á persónulegri bók Gyrðis Erlendur maður sveik fé út úr eldri borgurum Dramatískt jafntefli í Atlanta Stígur ungur inn á stóra sviðið Sviss – Bosnía kl. 19, bein lýsing Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Engin ástæða til að gráta fjársjóðinn Aflýstu 17. júní vegna veðurs Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Búinn að koma sér fyrir í hvalveiðiskipi Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Var háð foreldrum sínum og vildi ekki flytja út Aflýstu 17. júní vegna veðurs Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Nýjast á mbl.is » Mikil sala á persónulegri bók Gyrðis Erlendur maður sveik fé út úr eldri borgurum Dramatískt jafntefli í Atlanta Stígur ungur inn á stóra sviðið Sviss – Bosnía kl. 19, bein lýsing Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hekluhúsið víkur fyrir nýjum íbúðum Ný lög um íslenska fánann auka söluna „Vona að menn fari kátir út í sumarið“ Dagur fagnar höllinni: „Loksins, loksins!“ Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Búinn að koma sér fyrir í hvalveiðiskipi Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Var háð foreldrum sínum og vildi ekki flytja út Aflýstu 17. júní vegna veðurs Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi

Share this article