Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Axel og Guðrún unnu Hvaleyrarbikarinn

Read Full Article →

Eitt af sterkustu golfmótum ársins hér á landi fór fram um helgina og lauk í dag, Hvaleyrarbikarinn á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Mótið er fimmta stigamótið á GSÍ-mótaröðinni í sumar og venju samkvæmt eru leiknar 54 holur á þremur dögum eða þrír hringir. Nokkur eftirvænting var fyrir því að sjá hvernig kylfingunum gengi að eiga við völlinn en Hvaleyrarvöllur er nokkuð erfiðari en áður eftir breytingar sem gerðar voru á síðari níu holunum. Þær eru nú allar með fram sjónum og með yfirbragði líkt og þekkist á völlunum sem halda Opnu risamótin erlendis. Öruggur sigur Guðrúnar Atvinnukylfingurinn og núverandi Íslandsmeistari, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, þekkir Hvaleyrarvöll í bak og fyrir enda hefur hún keppt fyrir Keili alla tíð. Hún þótti því fyrirfram sigurstrangleg og stóð undir þeim væntingum. Guðrún Brá var með fimm högga forskot forystu fyrir lokahringinn og sigur hennar var aldrei í hættu. Hún sigraði á samtals fjórum höggum yfir pari, sex höggum á undan næstu kylfingum eftir hringi upp á 73, 72 og 75 högg. Lokastaðan í kvennaflokki Bráðabani í karlaflokki Í karlaflokki var tvöfaldur Íslandsmeistari, Aron Snær Júlíusson úr GKG, með eins höggs forystu fyrir lokahringinn. Hann missti hins vegar flugið í dag og lék lokahringinn á 6 höggum yfir pari. Hann kom í hús á samtals tveimur höggum yfir pari í fimmta sæti. Það opnaði leiðina fyrir Axel Bóasson og Sigurð Bjarka Blumenstein sem enduðu jafnir á samtals tveimur höggum undir pari. Axel og Sigurður léku báðir lokahringinn á 69 höggum, þremur undir pari, og áttu bestu hringi dagsins. Þeir luku því báðir leik á 214 höggum, tveimur höggum undir pari. Þeir léku 15. holu Hvaleyrarvallar í bráðabana. Báðir fengu par þegar holan var leikin í fyrra skiptið og þurftu því að leika hana aftur. Í seinna skiptið fékk Axel par en Sigurður Bjarki missti parpútt sitt. Axel tryggði sér með því sigur í Hvaleyrarbikarnum. Lokastaðan í karlaflokki

Share this article