Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

KA með sigurmark í blálokin eftir sex tapleiki í röð

Read Full Article →

Fjórir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í dag og í kvöld og var áhorfendum boðið upp á sannkallaða markasúpu. KR lenti undir á heimavelli gegn ÍBV með marki Omar Sowe á 4. mínútu en KR ingar svöruðu með fimm mörkum í 5-2 sigri. Alls voru 19 mörk skoruð í leikjunum þremur sem hófust kl. 18. Fram tók á móti Þór frá Akureyri í Úlfarsárdalnum og vann stórsigur 6-1. Fram er með 30 stig í þriðja sæti, tveimur stigum á eftir KR sem er í öðru sæti en Fram á leik til góða. Víkingur er með 40 stig á toppnum. Á Akureyri mættust lið sem hafa ekki staðið undir væntingum í sumar. KA hafði tapað sex leikjum í röð og var tveimur stigum frá fallsæti þegar Skagamenn komu í heimsókn. Skagamenn komust í 0-2 áður en KA menn svöruðu með þremur mörkum. Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði sigurmarkið á 95. mínútu þegar hann hirti frákastið eftir að vítaspyrna frá honum var varin. FH - Valur 2-0 Þrátt fyrir þennan sigur er KA áfram aðeins tveimur stigum frá fallsæti því FH-ingar gerðu sér lítið fyrir og unnu 2-0 sigur á Val. Gils Gíslason var hetja FH því hann skoraði bæði mörkin seint í leiknum. Þetta er fyrsti heimasigur FH á tímabilinu en liðið er í næst neðsta sæti, tveimur stigum á eftir KA. Þetta var annað tap Vals í röð og hefur liðið nú tapað fyrstu tveimur leikjum sínum eftir að þjálfaranum Hermanni Hreiðarssyni var sagt upp störfum. Staðan í Bestu deild karla

Share this article