Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stórsigur KR og sviptingar á botninum

Read Full Article →

Alls voru fjórir leikir í Bestu deildunum í fótbolta í dag, tveir hjá körlunum og tveir hjá konunum: Besta deild karla ÍBV 2-2 KA KR 5-0 Stjarnan Besta deild kvenna Víkingur 1-2 Fram Þór/KA 2-1 ÍBV Skoraði í sínum fyrsta leik Daninn André Römer, sem gekk til liðs við KA í vikunni, kom norðanmönnum yfir í Vestamanneyjum með marki á 35. mínútu. Omar Sowe jafnaði á 67. mínútu en Birgir Baldvinsson kom KA aftur yfir á 73. mínútu. Sowe fékk að líta beint rautt spjald á 77. mínútu fyrir að skalla andstæðing en það kom ekki að sök fyrir ÍBV því Vicente Valor jafnaði úr vítaspyrnu á 85. mínútu og 2-2 fór. Enn skora KR-ingar KR hefur skorað flest mörk allra liða í Bestu deildinni og ekkert lát varð á í dag þegar liðið fékk Stjörnuna í heimsókn. Arnór Traustason og Eiður Gauti Sæbjörnsson skoruðu báðir í fyrri hálfleik. Eiður bætti við öðru marki sínu á 51. mínútu og Aron Sigurðarson bætti við tveimur mörkum fyrir KR. Aron er lang markahæstur í Bestu deildinni og hefur nú skorað 16 mörk, fjórum meira en Víkingurinn Elías Már Ómarsson sem mun ekki spila meira á tímabilinu vegna meiðsla. Staðan í Bestu deild karla. Tvö ný lið í fallsæti Liðin svo voru í tveimur neðstu sætunum fyrir umferðina í Bestu deild kvenna, Fram og Þór/KA, unnu bæði leiki sína og lyftu sér upp úr fallsæti. Fram vann góðan útisigur á Víkingi þar sem Fram komst yfir með marki Öldu Ólafsdóttur á 16. mínútu. Framarinn Harpa Helgadóttir skoraði sjálfsmark á 51. mínútu og allt orðið jafnt en Alda skoraði öðru sinni á 78. mínútu og tryggði Fram 1-2 sigur. Erin Flurey kom Þór/KA yfir á 7.mínútu á Akureyri gegn ÍBV og Bríet Jóhannsdóttir tvöfaldaði forystuna á 47. mínútu. Avery Mae Vanderven minnkaði muninn tíu mínútum síðar en nær komust gestirnir ekki og norðankonnur unnu 2-1. Fram er sem stendur í sjötta sæti með 13 stig, stigi meira en Þór/KA og Grindavík/Njarðvík. Valur og Víkingur eru nú í fallsætunum tveimur með tíu stig en Valur á leik til góða á Þór/KA og Fram. Staðan í Bestu deild kvenna.

Share this article