Fram og KA mættust í tíundu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í dag. Framarar lentu undir en unnu upp forskotið og höfðu sigur í markaleik, 3-4. Þorri Stefán Þorbjörnsson kom bláklæddum gestunum yfir strax á 6. mínútu leiksins eftir stoðsendingu Haraldar Einars Ásgrímssonar. Einungis tveimur mínútum síðar jafnaði Hallgrímur Mar Steingrímsson fyrir KA, 1-1. Sveinn Hauksson skoraði svo annað mark KA á 17. mínútu en mörkin áttu eftir að vera nokkur þaðan. Framarar fengu vítaspyrnu á 34. mínútu og Atli Þór Jónasson steig á punktinn og jafnaði, 2-2. Atli Þór bætti svo við öðru marki fyrir hálfleiksflaut og Fram fór með eins marks forystu inn í hálfleik, 3-2. Freyr Sigurðsson skoraði fjórða mark Framara á 63. mínútu, 4-2, en Jóan Símun Edmundsson minnkaði muninn fyrir KA á 84. mínútu en það reyndist einnig lokamarkið. Lokatölur 4-3 sigur Framara sem sitja nú í þriðja sæti Bestu deildarinnar, tveimur stigum frá KR í öðru sæti. KR á þó leik til góða, liðið mætir toppliði Víkinga á morgun.