Fjórir leikir voru á dagskrá í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Breiðablik vann 3-1 sigur gegn KA, en þeir grænklæddu höfðu unnið einn af síðustu fimm leikjum í deild. Markalaust var í hálfleik en Ágúst Orri Þorsteinsson kom Blikum yfir í Kópavogi. Birgir Baldvinsson jafnaði metin fyrir KA. Óli Valur Ómarsson kom Breiðablik svo aftur yfir. Hinn 15 ára gamli Arnar Bjarki Gunnleifsson gerði svo út um leikinn þegar skammt var eftir. Breiðablik er nú í 4. sæti með 16 stig en KA er í 9. sæti með 10 stig. Jafntefli hjálpar ekkert FH og Þór gerðu jafntefli í fallbaráttuslag sem gerir lítið fyrir bæði lið. Þór er í 11. sæti með sex stig og FH í 12. sæti með stigi minna. Úlfur Ágúst Björnsson kom FH yfir og Einar Freyr Halldórsson jafnaði metin úr víti í seinni háfleik Þá gerðu Valur og Keflavík 1-1 jafntefli á Hlíðarenda. ÍBV vann sinn þriðja leik í röð er liðið vann 2-1 sigur gegn Stjörnunni. Upplýsingar um markaskorara og mínútur fengnar frá fotbolti.net. FH 1 - 1 Þór 1-0 Úlfur Ágúst Björnsson ('23 ) 1-1 Einar Freyr Halldórsson ('74 , víti) Valur 1 - 1 Keflavík 1-0 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('19 ) 1-1 Marin Mudrazija ('71 ) ÍBV 2 - 1 Stjarnan 0-1 Benedikt V. Warén ('1 ) 1-1 Sesar Örn Harðarson ('28 ) 2-1 Bjarki Björn Gunnarsson ('32 ) Breiðablik 3 - 1 KA 1-0 Ágúst Orri Þorsteinsson ('58 ) 1-1 Birgir Baldvinsson ('63 ) 2-1 Óli Valur Ómarsson ('74 ) 3-1 Arnar Bjarki Gunnleifsson ('85 )