Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Blikar komu til baka í seinni hálfleik

  • What: Football match between Breiðablik and Keflavík
  • Impact: Local sports community
Read Full Article →

Einn leikur var í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Breiðablik vann Keflavík á Kópavogsvelli, 2-1. Það voru gestirnir sem skoruðu fyrsta markið á 24. mínútu. Alpha Conteh skaut af löngu færi og boltinn söng í netinu. Marin Mudrazija virtist vera að koma Keflvíkingum tveimur mörkum yfir skökmmu seinna en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Svo virðist sem sá dómur hafi verið rangur og markið átt að standa. Blikum tókst að jafna á 57. mínútu. Jónatan Guðni Arnarsson átti þá frábært skot fyrir utan teig, hans fyrsta mark í Bestu deildinni. Sigurmarkið kom á 89. mínútu. Það skoraði Kristinn Jónsson og Breiðablik tók stigin þrjú. Breiðablik er í fjórða sæti Bestu deildarinnar með 25 stig, fimm stigum á eftir Fram sem er í þriðja sæti. Keflvíkingar eru með 16 stig í sjötta sæti en þó einungis fimm stigum frá fallsvæðinu. Staðan í deildinni .

Share this article