Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Apollo hefur betur í baráttunni um EasyJet

Read Full Article →

Bandaríska fjárfestingafélagið Apollo hefur náð samkomulagi um kaup á breska lággjaldaflugfélaginu EasyJet fyrir 5,7 milljarða punda, eða um 959 milljarða króna, eftir að hafa yfirboðið samkeppnistilboð Castlelake. Frá þessu greinir Financial Times . EasyJet greindi frá því að samkomulag hefði náðst í meginatriðum um tilboð upp á 7,15 pund á hlut. Stjórn félagsins sagðist ætla að mæla með því að hluthafar samþykktu kaupin. Tilboð Apollo er hærra en síðasta tilboð Castlelake, sem hljóðaði upp á 6,90 pund á hlut og mat easyJet á um 5,5 milljarða punda, eða um 925 milljarða króna. Að sögn EasyJet tryggir tilboð Apollo hluthöfum betri niðurstöðu en síðasta tilboð Castlelake. Castlelake hafði um nokkurt skeið verið talið líklegast til að taka EasyJet af markaði. Stjórn flugfélagsins hafði þó hafnað fjórum fyrri tilboðum frá félaginu á þeim forsendum að þau endurspegluðu ekki verðmæti rekstrarins, áður en félagið féllst á frekari viðræður um hækkað tilboð. Sjá einnig Ea­syJet samþykkir yfir­töku­til­boð Cast­lela­ke EasyJet hefur um árabil verið talið eftirsótt yfirtökueign vegna verðmætra lendingar- og flugtakatíma á stórum evrópskum flugvöllum og umfangsmikillar pöntunarbókar hjá Airbus. Félagið, sem var stofnað sem lággjaldavalkostur við British Airways, hefur byggt upp eitt stærsta leiðakerfi Evrópu. Þrátt fyrir það hefur gengi EasyJet ekki náð sér á strik frá heimsfaraldrinum og þróast verr en hjá keppinautunum Ryanair og IAG, móðurfélagi British Airways.

Share this article