Stjórn breska lággjaldaflugfélagsins EasyJet hefur náð bráðabirgðasamkomulagi um sölu félagsins til fjárfestahóps undir forystu bandaríska fjárfestingarfélagsins Castlelake. Tilboðið hljóðar upp á 690 pens á hlut og metur félagið á um 5,2 milljarða breskra punda. Samkomulagið markar endalok langra og strembna samningaviðræðna á seinastliðnum vikum. Stjórn easyJet hafði áður hafnað nokkrum lægri tilboðum og lýst áhuga Castlelake sem tækifærissókn. Eftir að fjárfestingarfélagið hækkaði boð sitt samþykkti stjórnin að hefja formlegan undirbúning að sölu. Samkvæmt samningnum mun Castlelake fara með 49% hlut í félaginu en meirihlutinn verður í eigu Brookfield Asset Management ásamt tveimur evrópskum fjárfestum. Slíkt fyrirkomulag uppfyllir kröfur ESB um að flugfélög með starfsemi innan Evrópusambandsins séu í meirihlutaeigu evrópskra aðila. Castlelake hefur frest til 3. ágúst til að ljúka formlegu yfirtökutilboði. Þá eiga lykilhluthafar félagsins enn eftir að taka afstöðu. Þar á meðal er stofnandinn Stelios Haji-Ioannou, sem er einn stærsti eigandi EasyJet og gæti haft úrslitaáhrif á framgang samningsins. Áhugi Castlelake á EasyJet jókst eftir að hlutabréf félagsins féllu verulega í kjölfar átakanna við Persaflóa, sem leiddu til hækkandi eldsneytisverðs og aukinnar óvissu á flugmarkaði. Verðlækkunin gerði flugfélagið að álitlegra yfirtökumarkmiði, en hlutabréf hafa síðan hækkað á ný eftir að fregnir bárust af áhuga fjárfestahópsins. Takist að ljúka samningnum verður um að ræða eina stærstu yfirtöku á evrópsku flugfélagi á síðustu árum og um leið umtalsverða breytingu á eignarhaldi eins þekktasta lággjaldaflugfélags Evrópu.