Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet

Read Full Article →

Innlent | mbl | 28.7.2026 | 15:46 Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Sökudólgurinn, gamalreynd easyJet-vottuð taska Aðalsteins sem flugfélagið hugðist gera að féþúfu. Ljósmynd/Aðsend Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta var í apríl sem við dóttir mín fórum í frí til Grikklands þar sem við heimsóttum systur mína og lentum þá í þessu kostulega atviki hjá easyJet á Gatwick-flugvellinum í London þar sem ég var stoppaður með mína Samsonite-handfarangurstösku.“ Svo segist Aðalsteini Svan Hjelm frá í samtali við mbl.is, starfmanni Marel sem mikið er á faraldsfæti starfs síns vegna og hefur alltaf getað treyst því að handfarangurstaska hans, sem raunar er merkt „easyJet Verified“ frá framleiðanda, uppfylli skilyrði flugfélaga, ekki síst easyJet, um stærðartakmörk en þau mæla flugfélög gjarnan með ósveigjanlegu málmhólfi við brottfararhlið. Passi taskan ekki í hólfið má farþegi gjöra svo vel að draga upp kortið og greiða 48 pund í aukagjald, um það bil 8.100 krónur. Á Gatwick í apríl lentu Aðalsteinn og Inga dóttir hans í þeim hremmingum að frekar hóflegar töskur þeirra reyndust of stórar. Maðkur í mysunni? „Þarna lendi ég bara í því að taskan er langt frá því að passa ofan í og fannst það alveg fráleitt. Ég þekki mína tösku, hún rúmar jakkafötin og helstu nauðsynjar þegar ég er í vinnuferðum,“ segir Aðalsteinn frá og nefnir það sérstaklega að þarna við hliðið, á leið til Grikklands snemmvors, hafi starfsfólkið lagt á það mikla áherslu að allir farþegar mátuðu töskur sína. Ótrúlega margar þeirra reyndust ekki passa. Margreyndan ferðalang tók að gruna að maðkur væri í mysunni. „Í þessu eru lausar málmplötur sem eiga að ver spenntar út fyrir grindina en þarna var búið að losa öðrum megin og þrengja þannig að töskunum. Flugið beið og þú gast ekkert verið að nöldra í liðinu svo þetta er ákveðin fjárkúgun líka,“ segir viðmælandinn og hefur þar nokkuð til síns máls. Ekkert við því að gera þá og þar og Aðalsteinn greiddi aukagjaldið fyrir þau feðgin, 16.000 krónur. Þau fóru í fríið og nutu vel en þar lagðist Aðalsteinn raunar strax í rannsóknarvinnu og fyrstu kvörtun í stappinu við easyJet sem í gær skilaði sér í sigri og endurgreiðslu eftir að óháður breskur eftirlitsaðili, Aviation ADR, hafði komið að málinu auk þess sem bresku neytendasamtökin Which? hafa beiðst þess af honum að fá að nota mál hans sem dæmi svo búast má við umfjöllun um það í breska heimsveldinu sem eitt sinn var. Ekki varð easyJet kápan úr því klæðinu að hanka gamlan Marel-ref á aukagjöldum sem þekkir vel til vottunar mælitækja. Ljósmynd/Aðsend „Hvað með alla hina?“ „Menn hafa lagst í rannsóknir og farið í gegnum langt kæruferli og ég vissi um einn sem hafði fengið endurgreitt og mér fannst það besta mögulega útkoman og eftir að ég hafði farið í gegnum þetta allt saman kom póstur frá easyJet í gær þar sem mér var sagt að ég ætti von á endurgreiðslu. Þá hafði Aviation ADR farið í málið án þess að fara nokkru sinni á staðinn og mæla grindina. Í pósti easyJet var mér sagt að þessar málmplötur á Gatwick hefðu verið teknar út en ég spurði mig þá eðlilega „hvað með alla hina?““ segir Aðalsteinn og hefur lög að mæla þar sem freistandi er að álykta að þúsundir farþega láti sig bara hafa að greiða farangursgjaldið og haldi áfram með lífið á meðan flugfélagið er sigurvisst eins og Hólmgöngu-Skeggi í eynni Söxu í Gísla sögu Súrssonar sem Gísli hjó þó fótinn af. Skeggi gekk við tréfót síðan en hvað styðst easyJet við verði það svipt farangurssektum? Reiknaði Aðalsteinn það út að um þriðjungur af heildartekjum easyJet kæmi af því að kroppa peninga af farþegum hingað og þangað, yfirleitt smáupphæðir en margt smátt gerir auðvitað eitt stórt – upphæð sem jafnvel er hærri en sjálft flugmiðaverðið. Í Facebook-pistli um málið gerir Aðalsteinn grein fyrir aukagjaldahagfræði easyJet (og vafalítið fleiri flugfélaga): Til að setja þetta í samhengi skulum við taka einfalt dæmi. EasyJet flýgur fjórum sinnum á dag frá Gatwick til Aþenu. Ef við gefum okkur að að meðaltali 30 farþegar í hverju flugi greiði 8.100 kr. í aukagjald vegna handfarangurs, gætu tekjurnar numið um 972.000 krónum á dag, eða rúmlega 355 milljónum króna á ári – frá þessari einu flugleið. Af þeirri upphæð myndu um 18,4 milljónir króna renna til verktakans samkvæmt framangreindum upplýsingum. Til samanburðar rekur easyJet um 1.600 flug á dag um Evrópu. Ef sambærileg framkvæmd á sér stað á fleiri flugvöllum og hliðum er ljóst að um mjög háar fjárhæðir gæti verið að ræða. Þessir útreikningar eru að sjálfsögðu aðeins dæmi sem sýna hversu miklar tekjur geta orðið til ef slíkar innheimtur eru algengar. Hefur merkingin „free on board“ þá ekkert að segja í huga gróðafíkinna flugfélaga nútímans eða gerðu þau bara einföld mistök á Gatwick? Hver ætlar að svara þeirri spurningu? Ljósmynd/Aðsend Mælitæki án eftirlits „Hjá Marel seljum við vogir og þær þurfa að vera vottaðar. Einhver óháður aðili, sem ríkið stimplar upp á, þarf að votta þær, annars gæti hver sem er farið að fikta í vogum og selt eftir því. Þessir farangursmátar eru mælitæki sem enginn er að fylgjast með,“ segir Aðalsteinn. Svo þver var hann, að eigin sögn, að hann hafði samband við töskuframleiðandann Samsonite sem sór og sárt við lagði að taskan væri í lagi hvað stærð snerti og vottuð frá easyJet þannig að málið er þar komið í einn ferkantaðan hring að því er virðist. Hvað viltu þá segja við farþega sem sitja í sömu súpu? „Bara að gefast aldrei upp. Það er alltaf einhver leið áfram. Þarna benti ekkert til þess að þetta væri annað en rangt og þeir þurftu að játa, innan gæsalappa, á sig glæpinn. Það er ekki nema brot af farþegum sem nennir í gegnum þetta ferli. Mér finnst þetta alveg kostulegt. Allt í einu var búið að rannsaka ferlið og skipta út þessum plötum,“ segir Aðalsteinn Svan Hjelm sem hafði betur í rimmu sinni við easyJet og sneri félaginu í afstöðu sinni til stærðarmælinga handfarangurs – að minnsta kosti á Gatwick-flugvelli. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Fyrrverandi Valsarinn til Celtic fyrir metfé Slökkti eldinn með garðslöngu og afþakkaði aðstoð Hakk og spaghettí í brúnni sósu veldur uppnámi á TikTok Skrifar undir í Manchester þrátt fyrir áhuga stórliða Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óvissa um afleiðingar atkvæða Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Einn alræmdasti brotamaður Svíþjóðar dæmdur Sjö ákærðir fyrir líkamsárás á Austurvelli Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Meginþorri umsókna renni í gegn Ming Ting dæmd í 12 ára fangelsi Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna „Þetta er ekki stórskjálftasvæði“ Óvissa um afleiðingar bæði jás og neis Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Ástandið aldrei verið eins slæmt Nýjast á mbl.is » Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Fyrrverandi Valsarinn til Celtic fyrir metfé Slökkti eldinn með garðslöngu og afþakkaði aðstoð Hakk og spaghettí í brúnni sósu veldur uppnámi á TikTok Skrifar undir í Manchester þrátt fyrir áhuga stórliða Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Merki um að Bárðarbunga sé að þenjast út Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Meginþorri umsókna renni í gegn Einn alræmdasti brotamaður Svíþjóðar dæmdur Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Meginþorri umsókna renni í gegn Ming Ting dæmd í 12 ára fangelsi Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna „Þetta er ekki stórskjálftasvæði“ Óvissa um afleiðingar bæði jás og neis Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Ástandið aldrei verið eins slæmt

Share this article