Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Viðræður halda áfram eftir fjórðu höfnun

Read Full Article →

Breska lággjaldaflugfélagið EasyJet hefur hafnað fjórða yfirtökutilboði bandaríska fjárfestingafélagsins Castlelake, að fjárhæð 4,9 milljarðar punda, en hyggst engu að síður veita félaginu takmarkaðan aðgang að rekstrarupplýsingum í von um að það leiði til hagstæðara tilboðs. Nýjasta tilboð hljóðar upp á 650 pens á hlut og er það hæsta sem Castlelake hefur lagt fram hingað til. Stjórn EasyJet hafnaði því einróma og sagði það enn vanmeta félagið verulega auk þess sem óvissa ríkti um framkvæmd og eignarhaldsfyrirkomulag í hinum mögulegu viðskiptum. Í tilkynningu sem flugfélagið sendi frá sér í morgun kemur segist sjórnin þó áfram reiðubúin að halda viðræðum áfram og opna bækur sínar að takmörkuðu leyti. „Stjórnin telur að aðgangur Castlelake að afmörkuðum upplýsingum, líkt og óskað var eftir í nýjasta tilboði, geti orðið til þess að félagið leggi fram meira aðlaðandi tilboð sem endurspeglar betur verðmæti EasyJet, framtíðarhorfur þess og hagsmuni hluthafa.“ Samhliða því ítrekaði stjórnin áhyggjur sínar af því hvernig eignarhaldi yrði háttað og hversu langan tíma það gæti tekið að ljúka mögulegum viðskiptum. Hlutabréfaverð EasyJet hefur hækkað um 8% í viðskiptum dagsins og stendur í 582 pensum á hlut, sem bendir til þess að fjárfestar telji enn raunhæft að samkomulag náist eða að hærra tilboð sé í undirbúningi. EasyJet hefur áður gagnrýnt fyrri tilboð sem borist hafa, og sagt þær ekki endurspegla raunverulegt virði félagsins. Bandaríska fjárfestingafélagið, sem sérhæfir sig meðal annars í fjármögnun og útleigu flugvéla, á nú þegar lítinn hlut í EasyJet og hefur fengið til liðs við sig fleiri fjárfesta í yfirtökutilrauninni. Evrópskum flugfélögum er skylt að vera undir meirihlutaeign og stjórn aðila innan Evrópusambandsins, til að halda flugrekstrarleyfum sínum. Fyrirhugað fyrirkomulag gerir ráð fyrir að írskir samstarfsaðilar fari með 51% eignarhlut en Castlelake og aðrir fjárfestar eigi 49%. Markaðsaðilar telja að ákvörðun EasyJet um að veita aðgang að upplýsingum gefi til kynna að félagið sé tilbúið að skoða frekari viðræður, þrátt fyrir að núverandi tilboði hafi verið hafnað.

Share this article