Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Danskt fyrirtæki fær Trump-tolla endurgreidda

Read Full Article →

Danska iðnfyrirtækið Grafisk Maskinfabrik (GM) hefur fengið endurgreiddan hluta þeirra innflutningstolla sem fyrirtækið greiddi í Bandaríkjunum, eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi lagastoð svonefndra Trump-tolla úr gildi. Endurgreiðslurnar gætu skipt fjölmörg evrópsk útflutningsfyrirtæki máli, enda náðu tollarnir til innflutnings frá fjölda ríkja. Dómurinn gæti því orðið fordæmisgefandi fyrir fyrirtæki sem hyggjast krefjast endurgreiðslu. GM, sem flytur um 40% framleiðslu sinnar til Bandaríkjanna, greiddi 3,2 milljónir danskra króna í innflutningstolla á síðasta ári, sem samsvarar um 61 milljón íslenskra króna. Fyrirtækið hefur nú þegar fengið um 830 þúsund danskar krónur, eða rúmlega 15 milljónir króna, endurgreiddar vegna greiðslna á þessu ári. „Ferlið gengur hægt og bandarísk stjórnvöld veita því talsverða mótspyrnu,“ segir Uffe Nielsen, forstjóri GM, í samtali við Børsen . Hann kveðst þó eiga von á að fyrirtækið fái allar ólögmætar innheimtur endurgreiddar. Fyrirtæki hafa getað sótt um endurgreiðslu frá því í vor eftir að dómstólar felldu úr gildi tolla sem byggðu á neyðarlögunum IEEPA. Samtök danskra iðnfyrirtækja segja afgreiðslu þegar hafna, þótt hún gangi hægt. Samtökin hvetja fyrirtæki til að varðveita gögn um tollagreiðslur þar sem fleiri tollar gætu síðar verið felldir úr gildi. Þrátt fyrir dóminn hefur Trump-stjórnin leitast við að byggja tollastefnu sína á öðrum lagaheimildum. Sérfræðingar telja því að tollamúrar Bandaríkjanna verði áfram við lýði, þótt lagastoðin breytist og frekari dómsmál kunni að fylgja.

Share this article