Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Afturkalla breytingar á opnunartíma frístundaheimila

Read Full Article →

Innlent | mbl | 4.7.2026 | 16:30 Afturkalla breytingar á opnunartíma frístundaheimila Opnunartíminn verður óbreyttur. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Borgarráð samþykkti í vikunni tillögu borgarstjóra að afturkalla breytingar á styttri opnunartíma frístundaheimila sem áttu að taka gildi í ágúst. Frístundaheimilin verða því áfram opin til klukkan 17 en til stóð að stytta opnunartímann um hálftíma á dag. Þáverandi meirihluti í borgarstjórn, undir forystu Samfylkingarinnar, Vinstri grænna, Pírata, Flokks fólksins og Sósíalistaflokksins, samþykkti í maímánuði að stytta opnunartíma frístundaheimilanna. Morgunblaðið greindi frá því að borgin hefði ekki gert úttekt á hvaða áhrif styttri þjónustutími frístundaheimila myndi hafa á mönnun þeirra. Þá var ekki leitað til foreldra barna, starfsmanna frístundaheimila eða annarra hagsmunaaðila þegar ákvörðunin var tekin. Í samþykktri tillögu borgarstjóra segir að styttingin hafi komið sér illa fyrir fjölskyldur borgarinnar. Margir foreldrar hafi ekki tök á að sækja börn fyrir klukkan 17 þar sem þau eru ýmist föst í vinnu eða umferð. Frétt af mbl.is Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. mbl.is/Hulda Margrét 473 nýti sér lengri opnunartíma „Stytting opnunartímans hefur einnig fyrirséð neikvæð áhrif á starf frístundaheimilanna. Eðli málsins samkvæmt minnkar starfshlutfall starfsfólksins töluvert sem er líklegt til að skila sér í auknum mönnunarvanda,“ segir í tillögunni. Þá segir að það feli í sér útgjöld að bjóða óbreytta þjónustu frístundaheimila. Í tillögunni er miðað við að óbreyttur opnunartími kalli á sem nemur tíu stöðugildum á ársgrundvelli eða sem nemur 88,8 milljónum króna. „Gert er ráð fyrir að gerð verði breyting á gjaldskrá frístundaheimila með þeim hætti að mánaðarleg greiðsla fyrir lengri dvalartíma verði kr. 5.000,- í 10,5 mánuði og að tekjur aukist því um 24,8 milljónir króna.“ Miðað er við að 473 nemendur muni nýta lengri viðveru á milli klukkan 16.30 og 17. Segir í tillögunni að ef útgjöld aukast um 88,8 milljónir króna og tekjur um 24,8 milljónir króna sé nettóaukning útgjalda vegna lengri opnunartíma frístundaheimila 64 milljónir króna. „Skóla- og frístundasvið mun láta aukin útgjöld umfram auknar tekjur rúmast innan fjárhagsramma fyrir frístundastarf. Aukinn opnunartími frístundaheimila á því ekki að leiða til aukinna útgjalda á skóla- og frístundasviði.“ Frétt af mbl.is Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik sínum fyrir Evrópuleik Afturkalla breytingar á opnunartíma frístundaheimila Lækkun ekki samanburðarhæf Ná samkomulagi við Arsenal Þriðja tap Skagamanna í röð Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Fékkstu útborgað í vikunni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Finnland hefur ekki forspárgildi Ekki látin vita af leka héraðssaksóknarans Hópslagsmál í Austurstræti: Tveir í fangageymslu Felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist Allt að 17 stiga hiti Stebbi Hilmars bætist við í hópinn á Skaganum Bongóblíða í Reykjavík á morgun Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Hvað kostar að leigja sundskýlu? Vill sjá eftirmál af leka saksóknarans Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Nýjast á mbl.is » Gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik sínum fyrir Evrópuleik Afturkalla breytingar á opnunartíma frístundaheimila Lækkun ekki samanburðarhæf Ná samkomulagi við Arsenal Þriðja tap Skagamanna í röð Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Fékkstu útborgað í vikunni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hantaveirufaraldrinum lokið Ekki látin vita af leka héraðssaksóknarans Mennirnir þekktust: Ekki í lífshættu eftir árásina Hætt við þéttingu í Grafarvogi Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist Allt að 17 stiga hiti Stebbi Hilmars bætist við í hópinn á Skaganum Bongóblíða í Reykjavík á morgun Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Hvað kostar að leigja sundskýlu? Vill sjá eftirmál af leka saksóknarans Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita

Share this article