Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Borgin vill stytta opnunartíma frístundaheimila

Read Full Article →

Innlent | mbl | 7.4.2026 | 19:37 Borgin vill stytta opnunartíma frístundaheimila Opunartími frístundaheimila verður að öllum líkindum styttur næsta haust. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Meirihluti skóla- og frístundaráðs hefur samþykkt að stytta opnunartíma frístundaheimila um hálftíma. Frístundaheimili borgarinnar verða því frá og með næsta hausti opin til klukkan 16.30 í stað 17 eins og hefur verið, verði tillagan samþykkt í borgarráði. Minnihlutinn í skóla- og frístundaráði viðrar hins vegar áhyggjur af þjónustuskerðingu og neikvæðum áhrifum á mönnun frístundaheimila vegna styttri vakta. Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundaheimila telur einnig nauðsynlegt að skoða áhrif breytinganna á mönnun. Tryggi fjármögnun í stað skerðinga Friðjón R. Friðjónsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skóla- og frístundaráði, telur breytingarnar fela í sér skerðingu á þjónustu við börn og fjölskyldur í borginni. Í bókun sem hann lagði fram á fundi ráðsins segir að slíkar breytingar séu sérstaklega varhugaverðar í ljósi stöðu þjónustunnar og þeirra áskorana sem þegar séu til staðar. „Þá er gagnrýnt að greinargerð málsins sé ófullnægjandi þar sem hvorki er gerð grein fyrir nýtingu tímans, hvaða valkostir voru skoðaðir né hvað aðgerðin sparar. Þá liggur fyrir að fjármagn vegna opnunartíma var þegar tekið úr rekstrarramma án þess að þjónustan hafi verið skert á sama tíma,“ segir í bókuninni. Stytting opnunartíma átti að taka gildi þann 1. janúar 2025 en var frestað. Fjármagn vegna opnunartíma var hins vegar tekið út á þeim tíma. „Mikilvægt er að leita leiða til að halda úti þjónustu til kl. 17 og tryggja samráð við foreldra og starfsfólk um áhrif breytinganna. Í stað skerðinga hefði átt að tryggja eðlilega fjármögnun. Ný borgarstjórn þarf, að loknum kosningum, að taka málið upp að nýju,“ segir jafnframt í bókun Sjálfstæðisflokksins. Skerðingin skili af sér í mönnunarvanda Í bókun Jóhönnu Dýrunnar Jónsdóttur, skóla- og frístundaráðsfulltrúa Viðreisnar, er bent á að það sé þjónustuskerðing að samræma opnunartíma frístundaheimila við opnunartíma leikskóla, sem styttur hafi verið vegna mönnunarvanda. „Þessi skerðing er líkleg til að skila af sér auknum mönnunarvanda þar sem þegar er teflt á tæpasta vaði. Þegar vaktin er aðeins þrír og hálfur tími er augljóst að hún verður tæplega fyrsta val í atvinnuleit.“ Í bókuninni er lagt til að skoðaðar verði lokunarvaktir til að mæta þörfum þeirra sem þurfa þjónustuna til klukkan 17, eins og áður, en að greitt sé aukalega fyrir síðasta klukkutímann. „Þannig mætti vinna áfram að faglegu starfi og halda í það frábæra starfsfólk sem frístundaheimili og miðstöðvar hafa aflað.“ Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva telur mikilvægt að heyra í hagsmunaaðilum varðandi hvaða áhrif lokun kl. 16.30 mun hafa á velferð barna og fjölskyldna. Eins að skoðuð verði áhrif á mönnun í stöður á frístundaheimilum þegar daglegur vinnutími mun styttast. Málinu var vísað til borgarráðs en afgreiðslu þess var frestað á síðasta fundi ráðsins, þann 26. mars síðastliðinn. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Keflavík - Valur, staðan er 29:36 FH - Haukar, staðan er 9:9 Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Tveir danskir til Þórs Með stærri þrumuveðrum sem komið hafa til landsins Umræðan Áttavitinn þarf að virka ESB-aðild er annars eðlis en annað alþjóðasamstarf Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum níðingi Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi Trump: „Öll siðmenning verður þurrkuð út í nótt“ Vaxandi óánægja með störf borgarstjóra Mest lesið Í gær Í vikunni Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Þak fauk af í heilu lagi Fylgstu með lægðinni ganga yfir Næsta lægð á miðvikudag Illa búnir bílar verða sektaðir: 20 þúsund á dekk Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Tíu ár frá Höskuldarviðvörun Bíll valt á Hellisheiði Flugslysaáætlun virkjuð á Akureyri Líkur á eldingum í kvöld Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » Keflavík - Valur, staðan er 29:36 FH - Haukar, staðan er 9:9 Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Tveir danskir til Þórs Með stærri þrumuveðrum sem komið hafa til landsins Umræðan Áttavitinn þarf að virka ESB-aðild er annars eðlis en annað alþjóðasamstarf Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við erum komin yfir 40 þúsund“ Margvíslegt foktjón varð víða um land Innanlandsflugi seinkar Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Mest lesið Í gær Í vikunni Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Þak fauk af í heilu lagi Fylgstu með lægðinni ganga yfir Næsta lægð á miðvikudag Illa búnir bílar verða sektaðir: 20 þúsund á dekk Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Tíu ár frá Höskuldarviðvörun Bíll valt á Hellisheiði Flugslysaáætlun virkjuð á Akureyri Líkur á eldingum í kvöld Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun

Share this article