Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.5.2026 | 8:00 Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Börn verða frá næsta hausti að vera sótt fyrir kl. 16.30 þegar nýr þjónustutími tekur gildi. Síðustu ár hefur verið opið til klukkan 17. mbl.is/Eggert Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Reykjavíkurborg gerði ekki úttekt á því hvaða áhrif styttri þjónustutími frístundaheimila myndi hafa á mönnun heimilanna. Þá var ekki leitað til foreldra barna, starfsmanna frístundaheimila eða annarra hagsmunaaðila þegar ákvörðun var tekin um að skerða þjónustutímann. Þetta kemur fram í svari skóla- og frístundasviðs við fyrirspurn Morgunblaðsins. Borgarstjórn samþykkti í síðasta mánuði að stytta þjónustutíma frístundaheimila um hálftíma á dag frá og með ágústmánuði. Frístundaheimilum borgarinnar verður því lokað klukkan 16.30 en ekki klukkan 17 eins og tíðkast hefur. Samkvæmt svari borgarinnar nemur sparnaðurinn af þessari ráðstöfun rúmlega 166 milljónum króna á ári. Af almennum frístundaheimilum hlýst 84 milljóna króna sparnaður og í sértækum frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum nemur hann rúmlega 82 milljónum króna. Veldur áhyggjur af mönnun Að sögn starfsmanna frístundaheimila veldur styttri þjónustutími heimilanna ákveðnum áhyggjum af mönnun fyrir haustið. Skólafólk hefur gjarnan sótt í þessi störf. Með því að stytta þjónustutíma frístundaheimila um hálftíma á dag styttist vinnuvikan um tvær og hálfa klukkustund og eru áhyggjur uppi um að það leiði til þess að störfin séu ekki jafn samkeppnishæf og önnur störf sem skólafólk sækist eftir. „Við leggjum mikinn metnað í að manna stöður hratt fyrir haustið. Það gæti orðið flóknara að manna nú af því að fólk getur nú fengið minna starfshlutfall,“ sagði Guðrún Kaldal, framkvæmdastjóri frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar og fulltrúi stjórnenda frístundamiðstöðva í skóla- og frístundaráði, í samtali við mbl.is fyrr í mánuðinum. „Þá erum við kannski ekki eins samkeppnishæf við önnur störf sem eru í boði fyrir ungt fólk.“ Mest skorið niður á skóla- og frístundasviði Þessa ráðstöfun má rekja aftur til ársins 2024 þegar fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 2025 til 2029 var samþykkt. Hún var þó ekki samþykkt fyrr en í apríl og hefur því ekki verið tryggt fjármagn til að tryggja þjónustutíma frístundaheimila til klukkan 17 frá áramótum 2025. Í áætluninni var samþykkt að hætta þjónustu frístundaheimila á löngum dögum, loka sumarfrístund í fimm vikur í stað fjögurra og stytta þjónustutíma frístundaheimila. Gripið var til þessa til að brúa halla Reykjavíkurborgar en niðurskurðurinn var mestur á skóla- og frístundasviði. Tímalína Fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir árin 2025 til 2029 samþykkt í desember 2024. Borgarstjórn samþykkir í apríl 2026 að stytta þjónustutíma frístundaheimila um hálftíma á dag. 22. ágúst 2026 mun styttri þjónustutími taka gildi þar sem frístundaheimilum borgarinnar verður lokað klukkan 16.30. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Meistararnir sigri frá úrslitum Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Fór í frí án þess að tala við bróður sinn Ver Ísland gegn tölvuárásum Liverpool átti verstu kaupin Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áfram í varðhaldi eftir manndrápstilraun Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Þórður Þórarinsson nýr bæjarstjóri í Hafnarfirði Ekki óafturkræfar breytingar gerðar Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Þórarna nýr forstjóri Óvissan í fluginu bætist við mótvind Óbærileg ár fram undan Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Ekki óafturkræfar breytingar gerðar Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Ver Ísland gegn tölvuárásum Líkamsárás og þjófnaður úr gámi Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Enginn mætti frá ríkisstjórninni Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Nýjast á mbl.is » Meistararnir sigri frá úrslitum Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Fór í frí án þess að tala við bróður sinn Ver Ísland gegn tölvuárásum Liverpool átti verstu kaupin Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Markmiðið að hanna einföld og auðskilin merki Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Óvissan í fluginu bætist við mótvind Ný aðildarríki ESB yrðu án neitunarvalds fyrstu árin Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Þórarna nýr forstjóri Óvissan í fluginu bætist við mótvind Óbærileg ár fram undan Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Ekki óafturkræfar breytingar gerðar Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Ver Ísland gegn tölvuárásum Líkamsárás og þjófnaður úr gámi Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Enginn mætti frá ríkisstjórninni Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Grunnskólakennari sakaður um að maka saur

Share this article