Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.5.2026 | 20:40 | Uppfært 21:12 Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum Frístundheimili eru í boði fyrir sex til níu ára börn í grunnskóla að skóladegi loknum. mbl.is/Karítas Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Brýnt að bregðast við bómullarvæðingu barna Segir góðmennskuna í raun vera grimmd Einkunnirnar ekki til hjá borginni Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Samræmd próf eina leiðin » Fleiri tengdar fréttir Styttri opnunartími frístundaheimila, sem tekur gildi næsta haust, veldur ákveðnum áhyggjum af mönnun á frístundaheimilum borgarinnar. Borgarstjórn samþykkti í síðasta mánuði að stytta opnunartíma frístundaheimila um hálftíma á dag frá og með ágústmánuði. Frístundaheimilum borgarinnar verður því lokað klukkan 16.30 en ekki klukkan 17 eins og hefur tíðkast. „Við leggjum mikinn metnað í að manna stöður hratt fyrir haustið. Það gæti orðið flóknara að manna nú af því að fólk getur nú fengið minna starfshlutfall. Þá erum við kannski ekki eins samkeppnishæf við önnur störf sem eru í boði fyrir ungt fólk,“ segir Guðrún Kaldal, framkvæmdastjóri frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar og fulltrúi stjórnenda frístundamiðstöðva í skóla- og frístundaráði. Fjölbreyttur hópur fólks starfar á frístundaheimilum borgarinnar að sögn Guðrúnar. Þar starfar bæði fagfólk í fullu starfi auk fólks í hlutastarfi sem er gjarnan skólafólk eða listamenn. Foreldrar spyrjast fyrir Með því að stytta opnunartíma frístundaheimila um hálftíma á dag styttist vinnuvikan um tvær og hálfa klukkustund. Hafið þið áhyggjur af aukinni manneklu eða að grípa þurfi til lokana? Guðrún segir að misvel hafi gengið að manna í stöður á haustin í frístundaheimilum borgarinnar. Hraðar hafi gengið að manna miðsvæðis og í kringum háskólann en erfiðara hafi gengið að manna í störf í austurhluta borgarinnar. „Við vitum ekki hvort það að loka klukkan hálf fimm muni hafa einhver afgerandi áhrif eða ekki, það verður að koma í ljós,“ segir hún. Aðspurð segir Guðrún að hún hafi heyrt frá sínum samstarfsfélögum að foreldrar barna sem nýta sér þjónustu frístundaheimila séu farnir að hafa samband og spyrjast fyrir um skertan opnunartíma næsta haust. Frétt af mbl.is Borgin vill stytta opnunartíma frístundaheimila Fjármagn ekki verið tryggt frá 2025 Þegar málið var samþykkt í skóla- og frístundaráði lagði Guðrún fram bókun þar sem hún benti á mikilvægi þess að fá álit hagsmunaaðila á því hvaða áhrif lokunin kynni að hafa á velferð barna og fjölskyldna. Í fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir 2025 til 2029 var samþykkt að hætta þjónustu frístundaheimila á löngum dögum, loka sumarfrístund í fimm vikur í stað fjögurra og stytta opnunartíma frístundaheimila. Gripið var til þessa til að brúa halla Reykjavíkurborgar en niðurskurðurinn var mestur á skóla- og frístundasviði. Í bókun Guðrúnar hjá skóla- og frístundaráði bendir hún á að fjármagn vegna opnunartíma frístundaheimila hafi verið tekið úr fjárhagsáætlun borgarinnar sem tók gildi 1. janúar 2025 en að áhrif þess væru ekki að koma til framkvæmda fyrr en nú. Þannig hefur ekki verið tryggt fjármagn til að tryggja opnunartíma frístundaheimila til klukkan 17 frá áramótum 2025. Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Brýnt að bregðast við bómullarvæðingu barna Segir góðmennskuna í raun vera grimmd Einkunnirnar ekki til hjá borginni Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Samræmd próf eina leiðin » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Meistararnir lengi í gang – Afturelding skoraði fimm Inter bikarmeistari í tíunda sinn Evrópumeistararnir tryggðu titilinn Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Nægir jafntefli í lokaleiknum til að verða meistari Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fólk bíður í fjögur ár eftir aðgerð MAST veitir Ísteka skilyrt starfsleyfi Konungur kynnti áform Starmers: „Ekki núna, Andy“ Mikill munur eftir sveitarfélögum Mest lesið Í gær Í vikunni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Fer ekki í flík látins bróður í fjósið „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Nýjast á mbl.is » Meistararnir lengi í gang – Afturelding skoraði fimm Inter bikarmeistari í tíunda sinn Evrópumeistararnir tryggðu titilinn Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Nægir jafntefli í lokaleiknum til að verða meistari Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fósturforeldri á Suðurnesjum til rannsóknar Brýnt að bregðast við bómullarvæðingu barna Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Of mikið tillit tekið til íbúa og óánægju þeirra Mest lesið Í gær Í vikunni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Fer ekki í flík látins bróður í fjósið „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu

Share this article