Flugfélagið Ryanair og framkvæmdastjóri flugvallarins í Berlín, Aletta von Massenbach, hafa varað við stórfelldum röskunum á sumarferðalögum vegna nýs stafræns landamærakerfis Evrópusambandsins. Á vef BBC segir að Ryanair hafi varað fjölskyldur við því að þær megi búast við löngum biðröðum og hvetur stjórnvöld til að fresta gildistöku kerfisins fram til loka sumars. Um er að ræða hið svokallaða EES-kerfi (e. Entry-Exit System), sem krefur ferðamenn utan ESB um að skrá lífkenni sín við komu til flestra Evrópulanda. Lífkennin eru síðan borin saman við brottför. Sjá einnig Nýtt landamærakerfi veldur usla á flugvöllum ESB Kerfið, sem var fyrst tekið í notkun í apríl, hefur það markmið að nútímavæða landamæraeftirlit ESB. Það hefur hins vegar ítrekað valdið löngum biðröðum og segir Ryanair að töluverðar raskanir hafi orðið á flugvöllum á borð við Tenerife og Alicante. Neal McMahon, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Ryanair, gagnrýndi kerfið harðlega og segir að farþegar og fjölskyldur eigi ekki að vera „tilraunadýr“ fyrir hálfklárað vegabréfaeftirlitskerfi. Massenbach bendir á að flækjustigið stafi meðal annars af því að hvert aðildarríki noti sín eigin undirkerfi, sem torveldi samræmda afgreiðslu við landamærin.