- What: New EU border system EES is causing issues for travelers.
- Impact: Travelers may face long queues and delays at Greek airports.
Forstjóri gríska flugvallarekstrarfélagsins Fraport Greece segir nýtt rafrænt landamærakerfi Evrópusambandsins (EES) ekki virka í núverandi mynd og telur nauðsynlegt að endurhanna það. Að hans sögn hefur tímabundin undanþága frá lífkennaskráningu breskra ferðamanna komið í veg fyrir alvarlegar tafir á stærstu ferðamannaflugvöllum Grikklands. Alexander Zinell segir í viðtali við Financial Times að kerfið búi yfir grundvallargöllum þar sem farþegar þurfi að gangast undir tímafreka skráningu við komu á flugvöll. Slíkt hafi leitt til langra biðraða og í sumum tilvikum hafi farþegar misst af flugi sínu vegna þess. Yfir sumarið hafa grísk yfirvöld veitt breskum ríkisborgurum undanþágu frá fingrafara- og andlitsskönnun og aðeins skráð grunnupplýsingar þeirra. Undanþágan fellur þó úr gildi í september og samkvæmt gildandi reglum ESB er ekki gert ráð fyrir að hún verði framlengd. Framkvæmdastjórn ESB hefur hafnað kröfum um að stöðva innleiðingu kerfisins eða framlengja undanþágurnar. Að sögn embættismanna er samfelld skráning komu og brottfarar nauðsynleg til að tryggja að ferðamenn og lengd dvalar þeirra sé ekki ranglega skráð. Zinell segir flugstöðvar ekki hannaðar fyrir svo langan afgreiðslutíma og telur fráleitt að byggja þurfi upp meiri innviði vegna kerfis sem ætti að gera landamæraeftirlit skilvirkara. Að hans mati ætti skráning farþega að fara fram áður en ferð hefst, líkt og víða er gert utan Evrópu. EES-kerfið var tekið í notkun í áföngum á síðasta ári, en hefur frá því það var innleitt að fullu í vor valdið töfum og tæknilegum vandkvæðum víða við ytri landamæri Evrópusambandsins. Þrátt fyrir að Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, hafi viðurkennt að tæknileg vandamál hafi komið upp, stendur framkvæmdastjórnin við áform sín um að halda innleiðingunni áfram.