Evrópsk flugfélög hafa fundið verulega fyrir hækkandi eldsneytisverði eftir átökin í Miðausturlöndum og truflanir á olíumarkaði síðustu mánuði. Stundarverð (e. spot price) á þotueldsneyti í Evrópu hefur meira en tvöfaldast frá því Bandaríkin og Ísrael gerðu árás á Íran. Hæst verður stundarverðið farið í um 1.838 dollara á tonn, samkvæmt umfjöllun CNBC. Hækkunin hefur þegar haft áhrif á rekstur margra stærstu flugfélaga Evrópu. Lufthansa-samstæðan, sem nær meðal annars yfir Lufthansa, Austrian Airlines, SWISS, Brussels Airlines, Eurowings og ITA Airways, hefur brugðist við með niðurskurði, breytingum á leiðakerfum og sparnaðaraðgerðum. Félagið hefur dregið úr framboði á skemmri leiðum, þar sem eldsneytiskostnaður vegur þyngst í rekstrinum. Icelandair tilkynni í lok apríl að brugðist yrði við ástandinu með því að fækka flugum í voráætlun félagsins og nam fækkunin um 2%. v Sjá einnig „Grátleg“ kjaradeila SAS hefur einnig aflýst fjölda flugferða og KLM dregið saman framboð á ákveðnum leiðum. Greiningaraðilar segja að þrýstingurinn sé sérstaklega mikill á flugfélög, sem eru með veikari fjárhag eða minni eldsneytisvarnir en stærri samkeppnisaðilar þeirra. Michael O’Leary, forstjóri Ryanair, sagði í síðustu viku að evrópskur flugrekstur gæti orðið fyrir verulegu áfalli haldist eldsneytisverð hátt fram á haustið. Hann sagði mörg félög enn glíma við háan skuldabagga eftir heimsfaraldurinn og að svigrúm þeirra til að taka á sig frekari kostnaðarhækkanir væri takmarkað. Flugfélög verja sig að hluta gegn sveiflum á olíumarkaði með svokölluðum áhættuvörnum, þar sem framtíðarkaup á eldsneyti eru tryggð á fyrirfram ákveðnu verði. Ryanair er með um 80% eldsneytisvarna fyrir árið, Lufthansa um 77% og easyJet um 70%, samkvæmt bandaríska greiningar- og fjárfestingarfyrirtækinu Morningstar. Wizz Air er hins vegar talið viðkvæmast stærri evrópskra flugfélaga með aðeins um 55% áhættuvörn. Greiningaraðilar segja að ef olíuverð haldist hátt gætu flugmiðar hækkað verulega á næstu mánuðum, sérstaklega á Evrópuleiðum, þar sem samkeppni hefur hingað til haldið verði niðri. Þá gæti þrýstingur aukist á minni flugfélög sem hafa lakari aðgang að fjármagni og minni möguleika til að velta hækkandi kostnaði út í miðaverð. Olíuverð hefur sveiflast mikið síðustu daga eftir árasir Bandaríkjahers í Íran. Verð á Brent-hráolíu fór í um 104 dollara fyrir helgi. Á mánudag lækkað verð á tunnu í 96 dollara en í gær, þriðjudag stóð verðið í tæplega 100 dollurum. Frá því stríðið í Íran hófst í lok febrúar hefur Brent-olía hækkað um meira en 30%. Siglingar um Hormússund hafa verið stopular en um fimmtungur allrar olíu í heiminum fer um sundið. Markaðsaðilar óttast að frekari truflanir á flutningum um sundið geti þrýst olíuverði enn hærra á næstu vikum. Sjá einnig Komnir í fjölmiðlabann Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .