Hitabylgjur hafa fengið ferðamenn til að sækjast í auknum mæli í norðlægari áfangastaði og forðast sumarfrí í Suður-Evrópu, að sögn Ben Smith, forstjóra Air France-KLM, í samtali við Financial Times . Smith sagði þessa breytingu, þar sem viðskiptavinir sniðganga svæði sem hafa glímt við langvarandi hita, vera þá mestu sem flugfélagið hefði séð undanfarnar vikur. Ummælin féllu eftir að fyrirtækið greindi frá 70% samdrætti í hagnaði á öðrum ársfjórðungi vegna hærra eldsneytisverðs. „Við sjáum fleiri Evrópubúa forðast ákveðna hluta Frakklands, Spánar og önnur svæði þar sem er sjóðandi heitt eða skógareldar,“ sagði Smith. Bandarískir ferðamenn haldi flestir fast við fyrri áætlanir en Evrópubúar leiti í auknum mæli norðar í álfuna í sumar. Skógareldar hafa geisað í Frakklandi og á Spáni síðustu daga samhliða nýrri hitabylgju í Evrópu og sums staðar hefur þurft að rýma ferðamannastaði. Air France-KLM hefur, líkt og keppinautarnir, orðið fyrir barðinu á hækkandi flugvélaeldsneyti í kjölfar átaka í Íran. Félagið skilaði 190 milljóna evra hagnaði á öðrum ársfjórðungi, 70% minna en ári áður, þótt tekjur hafi hækkað um nær 10% í 9,3 milljarða evra. Verð á flugvélaeldsneyti tvöfaldaðist strax eftir að átökin hófust í febrúar en hefur síðan lækkað. Félagið gerir nú ráð fyrir 8,9 milljarða dala eldsneytiskostnaði á árinu, um 2 milljörðum meira en í fyrra. Samstæðan lækkaði afkastaspá sína fyrir árið. Langflugum á að fjölga um allt að 3% í stað 4%, skamm- og meðalflug dragast saman um 1% og vöxtur lággjaldafélagsins Transavia er spáður 8%, ekki 10%. Smith sagði engar flugleiðir hafa verið lagðar niður, en fleiri vélar hefðu verið settar í viðhald yfir sumarið og opnun nýrra áfangastaða frestað. Leiðir til Mið-Austurlanda, þar á meðal Riyadh, verða áfram takmarkaðar. Air France-KLM hefur einnig lagt fram bindandi tilboð í allt að 49,9% hlut í portúgalska ríkisflugfélaginu TAP, sem Lufthansa sækist einnig eftir. TAP myndi veita félaginu sterka stöðu á Íberíuskaga og betri tengingar til Brasilíu og Suður-Ameríku.