Þrjár stórar sameiningar á evrópskum flugmarkaði eru í burðarliðnum á næstunni. Í Óðni í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun er þeirri spurningu velt upp hvort Icelandair muni neyðast til að sameinast öðru félagi þar sem flugstéttirnar þrjár hafa ítrekað haldið félaginu í gíslingu. Sjá einnig Er Icelandair næst í röðinni? Lufthansa tekur gamla Alitalia Þýska Lufthansa eignaðist 41% hlut í ítalska ITA Airways í janúar 2025 eftir 325 milljón evru, eða 46,5 milljarða króna, hlutafjáraukningu. Félagið hét áður Alitalia fram til 2021 og var í eigu ítalska ríkisins. Fyrr í þessum mánuði tilkynnti Lufthansa að það hyggist nýta kauprétt sinn á 49% til viðbótar fyrir aðrar 325 milljónir evra, eða 46,5 milljarða króna. Eftir það verður Lufthansa 90% eigandi í ITA og ítalska ríkið heldur eftir 10%. Viðskiptin þurfa enn samþykki framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og bandarískra samkeppnisyfirvalda og er búist við að þeim ljúki á fyrsta ársfjórðungi 2027. Air France-KLM tekur SAS Air France-KLM keypti 19,9% hlut í SAS í ágúst 2024 fyrir um 1 milljarð danskra króna, eða um 20 milljarða íslenskra króna, þegar skandinavíska flugfélagið lauk greiðslustöðvun í Bandaríkjunum. Í júlí 2025 tilkynnti Air France-KLM að það myndi stækka hlut sinn upp í 60,5%, með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda. Endanlegt kaupverð mun m.a. ráðast af rekstrarafkomu SAS. Samhliða þessu yfirgaf SAS Star Alliance og gekk til liðs við SkyTeam, bandalag Air France-KLM. Barist um TAP Portúgalska ríkið hóf einkavæðingaferli á TAP Portugal síðasta sumar en áformað er að selja 44,9% hlut í flugféalginu. Þrjú stóru evrópsku félögin sýndu áhuga, en IAG, móðurfélag British Airways og Iberia, dró sig síðar úr tilboðsferlinu. Eftir standa Lufthansa Group og Air France-KLM, sem bæði lögðu fram óskuldbindandi tilboð 2. apríl. Portúgalska ríkisstjórnin valdi báða aðila til að leggja fram bindandi tilboð innan 90 daga og lokaákvörðun er væntanleg í ágúst eða september. Að einkavæðingu lokinni getur ríkið síðar selt eftirstöðvarnar, 50,1%, til sama kaupanda. Starfsmannafélag TAP á 5,1% hlut í félaginu. TAP veitir aðgang að einstöku leiðakerfi til Brasilíu, Afríku og fleiri portúgölskumælandi markaða. Þeir hittu naglann á höfuðið í Portúgal þegar þegar þeir nefndu ríkisflugfélagið Tap. © epa (epa) Gömlu félögin í kapphlaupi við lággjaldarisana Stærsta áskorun gömlu evrópsku flugfélaganna er ekki samkeppni þeirra á milli heldur við lággjaldarisana Ryanair, easyJet og Wizz Air. Ryanair eitt og sér flutti 197 milljónir farþega árið 2024, meira en tvöfalt fleiri en easyJet og fleiri en Lufthansa samsteypan í heild sinni. Til að bregðast við þessari samkeppni hafa rótgrónu evrópsku flugfélögin á undanförnum árum gripið til æ harðari aðgerða til að lækka kostnað. Lufthansa gengur lengst Lufthansa Group er það félag sem hefur gengið lengst í að skipta starfseminni upp í aðskildar einingar með ólíkum kjarasamningum. Eurowings starfar eftir þýskum kjarasamningi sem er töluvert hagstæðari en hjá gamla Lufthansa, og Eurowings Europe á Möltu lækkar kostnaðinn enn frekar. Lufthansa City Airlines, sem var stofnað árið 2024, er svo nýjasta dæmið. Það flýgur sömu Evrópuleiðir og gamla Lufthansa en hefur engan kjarasamning, og flugmenn vinna eftir einstaklingssamningum á allt að 40% lægri kjörum en hjá flaggskipinu. Air France-KLM með Transavia Air France-KLM rekur Transavia, hollenskt lággjaldaflugfélag sem er að fullu í eigu KLM. Transavia hefur 47 vélar og sérhæfir sig í sólarflugi til Miðjarðarhafsins og Norður-Afríku. Félagið hefur að auki Transavia France til að ná inn á franska markaðinn, þar sem kjarasamningar Air France gera stuttar Evrópuleiðir óhagkvæmar. IAG með Vueling og LEVEL IAG, sem á meðal annars British Airways, keypti spænska lággjaldaflugfélagið Vueling árið 2013 og það er nú stærsta lággjaldaflugfélag gömlu evrópsku samsteypanna. IAG hefur einnig stofnað LEVEL til að keppa á langflugs-lággjaldamarkaði og Iberia Express, sem rekur styttri Evrópuleiðir fyrir Iberia. Á síðasta ári var British Airways Euroflyer leyst af hólmi sem sjálfstæð eining innan BA, en hugsunin er sú sama, lægri kjör á styttri leiðum.