Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lufthansa mun eignast 90% hlut í ITA Airways

Read Full Article →

Þýska flugsamstæðan Deutsche Lufthansa hyggst kaupa ráðandi hlut í ítalska flugfélaginu ITA Airways fyrir um 325 milljónir evra, eða um 46,7 milljarða króna. Þetta kemur fram á vef WSJ en þar er vitnað í tilkynningu frá félaginu. Með kaupunum mun Lufthansa fara með um 90% eignarhlut í félaginu, sem áður var rekið undir nafninu Alitalia. Lufthansa átti nú þegar 41% hlut í ITA Airways samkvæmt samkomulagi sem var gert árið 2023 við ítalska fjármála- og efnahagsráðuneytið þegar ítalska ríkið einkavæddi félagið. Viðskiptin eru þó háð samþykki eftirlitsaðila, meðal annars innan Evrópusambandsins og hjá bandaríska dómsmálaráðuneytinu. Gert er ráð fyrir að kaupunum ljúki á fyrsta ársfjórðungi 2027.

Share this article