Írska flugfélagið Ryanair hefur undirbúið sig fyrir „Armageddon aðstæður“ er varðar flugeldsneyti í ljósi stríðsins í Íran, samkvæmt fjármálastjóra félagsins, Neil Sorahan. „Erum við með áætlanir fyrir einhvers konar Armageddon aðstæður? Auðvitað, en ég sé ekki fyrir mér að það muni raungerast. Eins og staðan er núna munum við að fljúga samkvæmt fullri flugáætlun í sumar og stefnum einnig á fulla áætlun yfir vetrartímabilið,“ sagði Sorahan í viðtali við CNBC . „Ég held að við munum sjá einhver illa stödd flugfélög, sem voru þegar að glíma við erfiðleika fyrir stríðið, hugsanlega fara á hausinn næsta vetur,“ bætti hann við og vísaði m.a. í gjaldþrot Spirit Airlines. Hann yrði ekki hissa ef einhver evrópsk flugfélög yrðu komin í erfiða stöðu á næstu misserum. Hlutabréfaverð Ryanair hefur fallið um 3% í morgun eftir að félagið birti ársuppgjör fyrir opnun markaða í morgun. Gengi írska flugfélagsins hefur lækkað um 27,5% í ár. Ryanair hefur varið 80% af áætlaðri eldsneytisnotkun sinni í sumar á meðalverði 668 dalir á tonn. Verðið á eftirstandandi 20% eldsneytis sem ekki er varið hefur „rokið upp“ vegna sveiflna á markaði. Sorahan sagði flugfélagið þó ekki gera ráð fyrir að þurfa að aflýsa flugferðum. Hann sagði Ryanair ekki hafa verulegar áhyggjur af framboði flugeldsneytis þar sem evrópskir birgjar hafa tryggt sér aukið framboð frá öðrum heimssvæðum, þar á meðal Bandaríkjunum, Venesúela og Brasilíu. „Að því sögðu held ég að verð muni haldast hátt lengur, sem setur Ryanair í sérstaklega sterka stöðu sé horft til okkar öflugu eldsneytisvarna.“