Mark Cipenga snemma leiks virtist sjokkera enska liðið. Jordan Pickford náði ekki að verja skot Cipenga á nærstöngina þrátt fyrir að vera vel staðsettur. Hálfleikurinn virðist hafa róað Englendinga sem voru afar stressaðir fyrstu 45 mínúturnar en mark Cipenga kom á 7. mínútu. Englendingar voru æfir þegar jórdanski dómarinn Adham Makhadmeh dæmdi ekki víti þegar Mpasi virtist fella Kane innan teigs. Harry Kane jafnaði svo metin með skalla eftir fyrirgjöf Anthony Gordon á 75. mínútu. Allt ætlaði um koll að keyra og 58 milljónir Englendinga önduðu léttar. Kane skoraði stórglæsilegt mark á 86. mínútu með bylmingsskoti upp í þaknetið. Þrír varnarmenn hlébarðanna reyndu að komast fyrir skotið en þeim tókst það ekki.