Englendingar stimpluðu sig snemma inn í leikinn og Jude Bellingham skoraði fyrsta mark á 36. mínútu og svo annað strax tveimur mínútum síðar. Julian Quinones svaraði fyrir Mexíkó með fyrsta marki liðsins á 42. mínútu. Jerrell Quansah fékk rautt spjald á 54. mínútu fyrir tæklingu en takkarnir á skó hans fóru í fót andstæðingsins. Quansah var því rekinn af velli og Englendingar þurftu því að spila einum færri það sem eftir lifði leiksins. Raul Jimenez skoraði annað mark Mexíkóa á 69. mínútu en ekki voru mörkin fleiri hjá heimamönnum í Mexíkó. Lokatölur því 3-2 fyrir Englendingum.