England vann Lýðstjórnarlýðveldið Kongó 2-1. Útlitið var lengst af afar svart eftir að Kongómenn komust yfir snemma leiks. Það leit allt út fyrir að Englendingar væru á leið út úr mótinu en Mpasi í marki Lýðstjórnarlýðveldismanna var í miklum gír og varði allt. Sögðu skilið við álög sögunnar Þetta er í fyrsta sinn frá úrslitaleik HM 1966 sem England nær að vinna leik eftir að hafa verið undir. Síðan þá hafa liðið þrettán leikir á heimsmeistaramótinu. Þá hafði England aldrei unnið leik þar sem liðið hafði verið undir í hálfleik. Áður hafði liðið tapað sjö leikjum og gert tvö jafntefli í þau níu skipti sem það hafði gerst. England mætir Mexíkó í 16-liða úrslitum á Stadio Azteca. Það er völlurinn þar sem Maradona skoraði með hönd Guðs og eitt flottasta mark í sögu HM. Nú er tækifæri til að skapa betri minningar á þeim sögufræga velli. Virtist ekki ætla að ganga Mark Cipenga snemma leiks virtist sjokkera enska liðið. Jordan Pickford náði ekki að verja skot Cipenga á nærstöngina þrátt fyrir að vera vel staðsettur. Hálfleikurinn virðist hafa róað Englendinga sem voru afar stressaðir fyrstu 45 mínúturnar en mark Cipenga kom á 7. mínútu. Englendingar voru æfir þegar jórdanski dómarinn Adham Makhadmeh dæmdi ekki víti þegar Mpasi virtist fella Kane innan teigs. Harry Kane jafnaði svo metin með skalla eftir fyrirgjöf Anthony Gordon á 75. mínútu. Allt ætlaði um koll að keyra og 58 milljónir Englendinga önduðu léttar. Kane skoraði stórglæsilegt mark á 86. mínútu með bylmingsskoti upp í þaknetið. Þrír varnarmenn hlébarðanna reyndu að komast fyrir skotið en þeim tókst það ekki. Mörkin og helstu atvik: England vann í kvöld sinn fyrsta sigur í sögunni á HM eftir að hafa verið undir í hálfleik. Það hafði áður gerst níu sinnum og niðurstaðan var 7 töp og 2 jafntefli. Þá var þetta fyrsti sigur liðsins eftir að hafa lent undir frá úrslitaleiknum 1966.