Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Englendingar náðu loksins að skora og enda á toppnum

Read Full Article →

Eins og við var að búast þurfti lið Panama að verjast mikið og gerði það raunar mjög vel í dag. Enska liðinu gekk illa að brjóta upp varnarmúr Panama í fyrri hálfleik og markalaust var þegar hálfleiksflautið gall. Fyrsta markið leit loks dagsins ljós á 62. mínútu þegar Jude Bellingham skoraði í kjölfar hornspyrnu, 1-0. Bellingham var svo aftur á ferðinni á 71. mínútu þegar hann gaf boltann fyrir Harry Kane sem stangaði hann í netið, 2-0. Kane varð um leið markahæsti Englendingurinn á HM. José Fajardo kom boltanum í netið fyrir Panama eftir langa sendingu fram en hann reyndist rangstæður nú í uppbótartíma. Hann var svo aftur á ferðinni skömmu síðar, þá fór boltinn ekki inn að vísu en þetta var hættuleg sókn engu að síður. Litlu mátti muna að liðið skoraði sitt fyrsta mark á mótinu. 2-0 urðu engu að síður lokatölur og England endar á toppi L-riðils.

Share this article