Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bandarískur rafpallbíll á 3,2 milljónir í Ameríku

Read Full Article →

Slate Blank er lítill, rafknúinn bandarískur pallbíll sem á að fara á markað í lok árs 2026. Hugmyndin að honum fer þvert á ríkjandi strauma á bandarískum bílamarkaði. Grunngerðin er tveggja sæta pallbíll með um 330 km drægni, handsnúnum rúðum og án hefðbundins upplýsinga- og afþreyingarkerfis. Grunngerðin mjög einföld Kaupandinn fær ódýran grunnbíl og bætir síðan við því sem hann þarf. Hátalarar, litafilma, þakgrind, geymslulausnir og yfirbygging sem breytir bílnum í lítinn jeppa verða seld sem aukabúnaður. Slate segir að meira en 200 aukahlutir verði í boði og að yfir 80% þeirra kosti undir 500 dali. Um 4 milljónir kominn til Íslands Slate Blank mun að sögn framleiðandans kosta 24.950 dali í Bandaríkjunum, án ríkisstyrkja, eða um 3,2 milljónir króna. Það er bandarískt grunnverð áður en skattar, sendingarkostnaður og önnur gjöld bætast við. Mun minni en amerísku risarnir Bíllinn er um 4,4 metrar á lengd og því styttri en jafnvel eldri Ford F-100 pallbílar frá fimmta áratugnum. Hann er miklu nær gömlu litlu pallbílunum á borð við Ford Ranger en bandarískum pallbílum í fullri stærð. Til samanburðar er núverandi Ford F-150 um 5,3 til 6,2 metrar á lengd eftir útfærslu. Jeffs Bezos er meðal fjárfesta í Slate. Aðrir fjárfestar eru General Catalyst og TWG Global. Í apríl safnaði Slate 650 milljónum dala í hlutafjárútboði. Fyrirtækið stefnir á framleiðslu í Warsaw í Indiana. Fjallað er um málið í sérblaðinu Bílar , sem fylgir Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér .

Share this article