Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bandaríkin undirbúa árlegt rafbílagjald

Read Full Article →

Samstaða hefur myndast meðal beggja flokka á Bandaríkjaþingi um frumvarp sem myndi leggja nýtt árlegt gjald á eigendur rafbíla og tengiltvinnbíla til að standa straum af kostnaði við vegaviðgerðir. Samkvæmt frumvarpinu, sem lagt var fram í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í vikunni, yrðu eigendur rafbíla látnir greiða 130 dali á ári, eða um 16 þúsund krónur, á meðan eigendur tengiltvinnbíla verða látnir greiða 35 dali, eða um 4.300 krónur. Á vef New York Times segir að gjaldið gæti aukið þrýsting á bandaríska rafbílamarkaðinn sem glímir nú þegar við erfiðleika eftir að niðurgreiðslur til kaupenda voru felldar niður af ríkinu á síðasta ári. Sjá einnig Mikil and­staða við bíla­skattana Talsmenn frumvarpsins segja markmiðið vera að tryggja að eigendur rafbíla greiði sinn hlut þegar kemur að vegaviðgerðum en þær hafa hingað til verið fjármagnaðar að mestu leyti með bensín- og dísilgjöldum. Andstæðingar frumvarpsins segja hins vegar að gjöldin séu langt umfram það sem meðalökumaður bensínbíls greiðir árlega í eldsneytisskatt. Þar að auki er gjaldið fast óháð akstri á meðan eigendur bensín- og dísilbíla greiða samkvæmt akstri.

Share this article