Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stórt skref í rafbílavæðingu atvinnubíla

Read Full Article →

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um ökuskírteini sem rýmkar heimildir ökumanna með almenn ökuréttindi eða B-flokki. Fram til þessa hafa almenn ökuréttindi aðeins náð til bíla við vöruflutninga án eftirvagns sem eru að hámarki 3.500 kg að heildarþyngd. Reglugerðin heimilar nú þeim sem hafa haft B-réttindi í minnst tvö ár að aka rafbílum og bílum knúnum með óhefðbundnu eldsneyti sem vega án eftirvagns allt að 4.250 kg í stað 3.500 kg áður. Rafbílar eru oft nokkuð þyngri en sambærilegir bensín- og dísilbílar, fyrst og fremst vegna þyngdar á rafhlöðum. Það hefur orðið til þess að rafknúnir sendibílar lenda í einhverjum tilvikum yfir þyngdarmörkum sem gera það að verkum að ökumaður þarf meira próf (C1 eða C-réttindi), þótt bílarnir séu að öðru leyti sambærilegir hefðbundnum bensín- og dísilbílum. Sjá einnig Nýr eSprin­ter með allt að 400 km drægni „Með breytingunni er verið að jafna stöðu rafbíla og bíla sem knúnir eru með óhefðbundnu eldsneyti í vöruflutningum. Fyrirtæki og einstaklingar geta nú nýtt sér rafknúna sendibíla til fulls án þess að þurfa að bera kostnað af ökunámi vegna meira prófs,“ segir Símon Orri Sævarsson, sölustjóri Mercedes-Benz atvinnubíla hjá bílaumboðinu Öskju. Hann segir þetta vera stórt skref í rafbílavæðingu atvinnubifreiða þar sem burðargeta rafsendibíla í stærri atvinnubílum er oft töluvert lægri en í hefðbundnum dísilbílum. „Því til að fá þann burð sem þarf hefur framleiðandi hækkað heildarþyngd upp í allt að 4,25 tonn. Fyrirtæki sem nota þessa bíla hvað mest hafa ekki séð möguleikann í því að senda alla bílstjóra hjá sér á námskeið til aukinna ökuréttinda til að gera þeim kleift að aka þessum bifreiðum, einfaldlega á þeim grundvelli að starfsmannavelta hafi verið töluvert hröð og að erfitt hefur reynst að finna sumar- og afleysingastarfskraft sem er með slíkt próf.“ Símon tekur sem dæmi að Mercedes-Benz eSprinter hefur um nokkurt skeið verið fáanlegur með stórum rafhlöðum og mikilli drægni og burðargetu. „Þó að töluverður fjöldi eSprinter sé kominn á götur Íslands þá er það staðreynd að skráð heildarþyngd og nauðsyn fyrir auknum ökuréttindum hafa haft mjög heftandi áhrif á rafvæðingu þessa flota. Við stöndum samhliða Evrópu í þessum aðgerðum og er virkilega ánægjulegt að geta nú boðið rafbíla í þessari stærð sem er jafnvíg á alla bóga við hefðbundna jarðefnaeldsneytisútgáfu.“

Share this article