Innlent | Morgunblaðið | 17.6.2026 | 6:57 Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. mbl.is/Karítas Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Til skoðunar er í innviðaráðuneytinu að breyta reglugerð um ökuréttindi og má skilja á skriflegu svari aðstoðarmanns ráðherrans að stefnt sé að innleiðingu Evrópugerðar sem heimili ökumönnum með hefðbundin ökuréttindi að aka rafbílum sem eru allt að 4,25 tonn. Nú þarf meirapróf til þess. Aðgerðaleysi ráðherra í þessu máli hefur sætt gagnrýni. „Okkar ágæta ríkisapparat komst að því fyrir nokkru að lítið gengi að rafbílavæða sendibíla í millistærð, þ.e. sendibíla í svonefndum N1- og N2-flokkum, en dæmi um slíka bíla eru FIAT Ducato, Ford Transit, Renault Master o.fl. Til að aka þessum bílum með dísilvél þarf bara almenn ökuréttindi, en þegar sami bíll er orðinn rafbíll þá er hann þyngri og kominn upp úr 3,5 tonna flokknum og þarfnast ökumanna með aukin ökuréttindi,“ segir Pétur Kristján Þorgrímsson framkvæmdastjóri ÍSBAND í samtali við Morgunblaðið. Hann segist hafa rætt við innviðaráðuneytið og Samgöngustofu undanfarið ár, sem séu sammála um að þessu þurfi að breyta, en ekkert gerist í málinu þrátt fyrir það. Samkvæmt gildandi reglugerð um ökuskírteini er kveðið á um að hefðbundin ökuréttindi heimili ekki ökumönnum með slík réttindi að aka bílum þyngri en 3,5 tonn. Þess hefur þó ítrekað verið farið á leit við innviðaráðherra að hann breyti reglugerðinni á þann veg að heimila handhöfum hefðbundinna ökuréttinda að aka bílum allt að 4,25 tonnum að þyngd, sem er í samræmi við tilskipun frá Evrópusambandinu sem innleidd hefur verið hér á landi, en ráðherrann hefur ekki orðið við því. Samtök verslunar og þjónustu og Bílgreinasambandið hafa óskað eftir því að reglugerðinni verði breytt til samræmis við heimildina í Evróputilskipuninni sem áður var nefnd. Umræddri reglugerð hefur verið breytt í tvígang undanfarna mánuði, án þess að tillit hafi verið tekið til þessa. Pétur Kristján segir að innviðaráðuneytið viti af þessari hindrun í að rafvæða sendibíla í millistærð og lausnin sé fyrir hendi. Skv. svari aðstoðarmanns eru líkur á að úr rætist. Lesa má nánar um málið á bls.6 í Morgunblaðinu í dag Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lítið sést til sólar á þjóðhátíðardaginn Baulað á Katrínu og börnin í skrúðgöngu Sérsveitin kölluð til eftir að maður ógnaði með hnífi „Rosalega auðvelt að vera bara sáttur“ Aðsend grein: Er ástæða til að fagna í dag? Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Er ástæða til að fagna í dag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leggja til verulega hert skilyrði fyrir vindorkuver Þrír áfrýja til Hæstaréttar Vongóður um að viðræður þokist áfram Ekkert sem bendir til geðræns vanda Mest lesið Í gær Í vikunni Valdimar lætur af störfum Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Fánar dregnir að húni um allan bæ „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Áframhaldandi vegavinna í vikunni Náðu góðri lendingu eftir ókyrrðina „Við vorum samtímis forsetar í tvær vikur“ Myndir: Víkíngahátíðin hafin í 29. skiptið Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Steypireyðar snúa aftur til Skjálfandaflóa Stungu af með kranabíl Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Þorgerður svarar Diljá Mist Þrír fluttir með þyrlu eftir alvarlegt umferðarslys Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Kastaðist úr golfbíl eftir árekstur Lofaði konunni sinni að taka pásu Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Lítið sést til sólar á þjóðhátíðardaginn Baulað á Katrínu og börnin í skrúðgöngu Sérsveitin kölluð til eftir að maður ógnaði með hnífi „Rosalega auðvelt að vera bara sáttur“ Aðsend grein: Er ástæða til að fagna í dag? Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Er ástæða til að fagna í dag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skæð inflúensa olli miklu álagi Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Tveir í gæsluvarðhald vegna árásar í Reykjanesbæ Ýmis sóknarfæri til að mæta vaxandi blóðgjafaþörf Mest lesið Í gær Í vikunni Valdimar lætur af störfum Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Fánar dregnir að húni um allan bæ „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Áframhaldandi vegavinna í vikunni Náðu góðri lendingu eftir ókyrrðina „Við vorum samtímis forsetar í tvær vikur“ Myndir: Víkíngahátíðin hafin í 29. skiptið Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Steypireyðar snúa aftur til Skjálfandaflóa Stungu af með kranabíl Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Þorgerður svarar Diljá Mist Þrír fluttir með þyrlu eftir alvarlegt umferðarslys Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Kastaðist úr golfbíl eftir árekstur Lofaði konunni sinni að taka pásu Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum