Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ökuréttindi takmarka rafvæðingu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 17.6.2026 | 11:22 | Uppfært 12:20 Ökuréttindi takmarka rafvæðingu Pétur Kristján Þorgrímsson framkvæmdastjóri gagnrýnir að ekki sé búið að heimila ökumönnum með B-réttindi að aka þyngri rafbílum. Ljósmynd/Aðsend Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Við höfum rætt við innviðaráðuneytið og Samgöngustofu undanfarið ár sem eru sammála um að þessu þurfi að breyta en ekkert gerist í þeim efnum. Það mokast hins vegar peningar úr ríkissjóði í ameríska rafmagnspallbíla sem samkvæmt skilgreiningu Samgöngustofu falla undir sendibíla, en að mati Tollsins eru þetta fólksbílar og eiga því ekki rétt á þessum styrk,“ segir Pétur Kristján Þorgrímsson, framkvæmdastjóri Íslensk-bandaríska ehf., ÍSBAND, í samtali við Morgunblaðið. Fyrirtækið er umboðsaðili Fiat-atvinnubíla og einnig Jeep, Ram og Leapmotor. Morgunblaðið fjallaði á dögunum um að reglugerð um ökuskírteini kvæði á um að hin hefðbundnu ökuréttindi, svokölluð B-réttindi, heimili ekki ökumönnum með slík réttindi að aka bílum þyngri en 3,5 tonn. Þess hefur þó ítrekað verið farið á leit við innviðaráðherra að hann breyti reglugerðinni á þann veg að heimila handhöfum hefðbundinna ökuréttinda að aka bílum allt að 4,25 tonn að þyngd sem er í samræmi við tilskipun frá Evrópusambandinu sem innleidd hefur verið hér á landi, en ráðherrann hefur ekki orðið við því. Aukinna réttinda krafist „Okkar ágæta ríkisapparat komst að því fyrir nokkru að lítið gengi að rafvæða sendibíla í millistærð, þ.e. sendibíla í svonefndum N1- og N2-flokkum, en dæmi um slíka bíla eru FIAT Ducato, Ford Transit, Renault Master o.fl. Til að aka þessum bílum með dísilvél þarf bara almenn ökuréttindi, en þegar sami bíll er orðinn rafbíll þá er hann þyngri og kominn upp úr 3,5 tonna flokknum og þarfnast ökumanna með aukin ökuréttindi,“ segir Pétur Kristján. „Þetta er mikil hindrun því allir sem fæddir eru eftir mitt ár 1976 hafa ekki þessi réttindi og erlendir verkamenn hafa þau ekki heldur. Þetta veldur því að fyrirtæki og stofnanir veigra sér við að kaupa þessa sendibíla, því ökuréttindin eru takmarkandi þáttur. Kostnaðurinn við að afla sér þessara réttinda er á fjórða hundrað þúsund auk þess sem nemendur þurfa að sitja tveggja vikna kvöldnámskeið og taka próf. Í raunveruleikanum, þar sem starfsmannavelta er mikil og sumarafleysingar stór þáttur í rekstri fyrirtækja, þá sleppa fyrirtækin því að kaupa þessa rafsendibíla,“ segir hann. Ráðuneytinu málið kunnugt Pétur Kristján segir að ÍSBAND hafi átt í tölvupóstsamskiptum við innviðaráðuneytið og hafi komið fram hjá ráðuneytinu að því væri um þetta kunnugt, ESB-gerðin hafi verið innleidd án þess þó að hafa nýtt heimildina um að hækka þyngdarmörk bílanna. Það hafi þó verið gert víða í Evrópu sem og í hinum norrænu löndunum. „Ráðuneytið veit sem sagt að hindrunin í að rafvæða þessa stærð sendibíla er til staðar, lausnin er komin en það gerir samt ekkert annað en að dæla milljarði í að styrkja einstaklinga í að kaupa sér rafmagnspallbíla,“ segir Pétur Kristján. Hann segir að í fyrra og í ár hafi 303 rafbílar í N2-flokki verið skráðir. Af þeim eru sendibílar 36 talsins og uppfylli skilyrði um ríkisstyrk vegna rafbílakaupa, en á listanum eru einnig 267 pallbílar sem eru til einkanota. „Þetta er algjörlega galið að ríkið skuli ekki stoppa þetta og það er búið að segja þeim frá þessu. Það sem af er þessu ári er ástandið enn brenglaðra, því af 141 skráðum bíl eru aðeins fimm sendibílar en 136 pallbílar,“ segir hann og bendir á að rafpallbíll frá t.d. GMC sé ekki vinnubíll. Sambærilegir bílar með bensín- og dísilvél, t.d. GMC Sierra 1500 og Ford F150, séu skráðir sem fólksbílar í tolli og beri 70% vörugjöld, en þegar þeir væru knúnir rafmagni, þá fengju þeir 0% vörugjöld þar sem Samgöngustofa skilgreini þá sem vörubíla og þeir eigi því rétt á styrknum. Pallbílar til einkanota niðurgreiddir „Það sem truflar okkur er að geta ekki rafvætt sendibílana af þeirri einföldu ástæðu að ríkið eða undirstofnanir þess breyta ekki þyngdartakmörkum ökuskírteina til samræmis við nágrannalönd okkar. Þau eru þannig í raun að koma í veg fyrir rafbílavæðingu í flokki sendibíla. Það sem er verra er að okkar skattpeningar eru nýttir til að niðurgreiða pallbíla til einkanota. Styrkur ríkisins til þessara pallbíla fer að nálgast milljarð,“ segir Pétur Kristján og vísar til þess að rafbílastyrkurinn nemi 33% af verði bílsins án virðisaukaskatts en með álagningu innflytjanda. Í fyrra gat styrkurinn orðið 5 milljónir að hámarki, en á þessu ári er hámarksstyrkur helmingi lægri, eða 2,5 milljónir. RAM-pallbíllinn er sannarlega tignarlegur ásýndum og ekki skemmir fyrir að kaupendur pallbíla njóti opinberra styrkja séu þeir knúnir rafmagni. Fari þyngdin upp fyrir 3,5 tonn, þá duga ekki hefðbundin ökuréttindi. mbl.is/Kristinn Magnússon Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fjallaði um Evrópuumræðu og leiðtogafund Búlgaría eða Írland ef Vestri vinnur Elín Sif er fjallkonan Gerir lítið úr skotum Rússa Trump hótar Íran að „varpa sprengjum á höfuð þeirra“ Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Náðu góðri lendingu eftir ókyrrðina Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Hvað vissi aðstoðarkona Epsteins? Leggja til verulega hert skilyrði fyrir vindorkuver Mest lesið Í gær Í vikunni Valdimar lætur af störfum Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Ráðherra sagður stefna að innleiðingu „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Sérsveitin kölluð til eftir að maður ógnaði með hnífi Krumma bjargað sem sat fastur upp í tré Fánar dregnir að húni um allan bæ Varað við snörpum vindhviðum Engin ástæða til að gráta fjársjóðinn Stungu af með kranabíl Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Þorgerður svarar Diljá Mist Þrír fluttir með þyrlu eftir alvarlegt umferðarslys Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Kastaðist úr golfbíl eftir árekstur Lofaði konunni sinni að taka pásu Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Fjallaði um Evrópuumræðu og leiðtogafund Búlgaría eða Írland ef Vestri vinnur Elín Sif er fjallkonan Gerir lítið úr skotum Rússa Trump hótar Íran að „varpa sprengjum á höfuð þeirra“ Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Vongóður um að viðræður þokist áfram „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Ekkert sem bendir til geðræns vanda Mest lesið Í gær Í vikunni Valdimar lætur af störfum Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Ráðherra sagður stefna að innleiðingu „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Sérsveitin kölluð til eftir að maður ógnaði með hnífi Krumma bjargað sem sat fastur upp í tré Fánar dregnir að húni um allan bæ Varað við snörpum vindhviðum Engin ástæða til að gráta fjársjóðinn Stungu af með kranabíl Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Þorgerður svarar Diljá Mist Þrír fluttir með þyrlu eftir alvarlegt umferðarslys Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Kastaðist úr golfbíl eftir árekstur Lofaði konunni sinni að taka pásu Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum

Share this article