Slate Blank er lítill, rafknúinn bandarískur pallbíll sem á að fara á markað í lok árs 2026. Hugmyndin að honum fer þvert á ríkjandi strauma á bandarískum bílamarkaði. Grunngerðin er tveggja sæta pallbíll með um 330 km drægni, handsnúnum rúðum og án hefðbundins upplýsinga- og afþreyingarkerfis. Grunngerðin mjög einföld Kaupandinn fær ódýran grunnbíl og bætir síðan við því sem hann þarf. Hátalarar, litafilma, þakgrind, geymslulausnir og yfirbygging sem breytir bílnum í lítinn jeppa verða seld sem aukabúnaður. Slate segir að meira en 200 aukahlutir verði í boði og að yfir 80% þeirra kosti undir 500 dali. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift