Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Laxveiðin með rólegra móti í sumar

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 29.6.2026 | 12:26 Laxveiðin með rólegra móti í sumar Hildur Björnsdóttir borgarstjóri opnaði Elliðaárnar fyrir réttri viku ásamt Reykvíkingi ársins. Veiðin í Elliðaánum fer rólega af stað eins og víðast hvar en að kveldi 24. júní sl. höfðu aðeins veiðst þar fjórir laxar. mbl.is/Hákon Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Laxveiðin hefur farið rólega af stað það sem af er sumri, en á vefnum Angling.is eru birtar vikulegar veiðitölur um afla í veiðiánum. Síðustu veiðitölur birtust þar sl. miðvikudagskvöld og má þar sjá að veiðin er svipuð og var í upphafi veiðitímabilsins í fyrra sem var sú lakasta frá því skráningar hófust. Aflahæsta veiðisvæðið er Þverá/Kjarrá þar sem 114 laxar voru komnir á land þann 24. júní og hafði vikan gefið 52 laxa. Heildaraflinn á sama tímabili í fyrra var 117 laxar, en þar skeikar reyndar einum degi því sú tala miðast við 25. júní 2025. Næstaflahæsta veiðiáin er Norðurá sem hafði gefið 78 laxa á tímabilinu, en í fyrra nam aflinn 85 löxum. Urriðafoss í Þjórsá var í þriðja sæti með 41 lax, en þó ber þess að geta að sú tala miðast við stöðuna 17. júní, en sölur yfir veiði síðustu viku vantar. Sambærileg tala fyrir árið 2025 var aftur á móti 268 laxar svo ljóst er að þar munar verulegu. Miðfjarðará hafði skilað 40 löxum sem er örlítið skárra en á sama tímabili 2025, en þá hafði hún gefið 34 laxa. Svipaða sögu er að segja af Haffjarðará þar sem 36 laxar hörðu veiðst á móti 32 í fyrra. Segja má að „hástökkvarinn“ sé Blanda sem hefur skilað 22 löxum frá opnum, en þar þurfti reyndar ekki mikið til því veiðin þar í fyrra var mjög slök og höfðu þar aðeins átta laxar komið á land á ofangreindu tímabili. Þá fer veiðin rólega af stað í hinum húnvetnsku ánum, Víðidalsá og Vatnsdalsá, en þær höfðu skilað 13 og 12 löxum og Laxá í Aðaldal var á sömu slóðum með 12 laxa, sem reyndar er einum laxi betra en í fyrra. Alls höfðu 10 laxar veiðst í Brennunni þann 24. júní, en Brennan heitir það veiðisvæði þar sem Þverá í Borgarfirði mætir Hvítá. Veiðin í Langá á Mýrum hófst 19. júní sl. og gaf hún alls níu laxa á fyrstu fimm dögum veiðitímabilsins. Grímsá hafði skilað sjö löxum sl. miðvikudag og Skuggi sex löxum, en Skuggi heitir veiðisvæðið þar sem Grímsá sameinast Hvítá. Skuggi er andspænis Straumunum þar sem Norðurá safnast i Hvítá, en þaðan höfðu ekki borist veiðitölur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Slysið varð í brattri hlíð Óvænt sagt upp störfum á Hlíðarenda Laxveiðin með rólegra móti í sumar Nottingham Forest horfir til Liverpool Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ Umræðan Öldruðum tryggð réttarbót Forsendur þjóðlegrar ritmenntar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vestmannaeyingar kalla eftir varaskipi Framkvæmd sem margborgaði sig Skip Watsons komið inn fyrir 200 mílurnar ESB leggur á nýtt gjald Mest lesið Í gær Í vikunni Skuldar þjóðinni skýringar Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Bindur vonir við virkjun Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Framkvæmd sem margborgaði sig 16 ára ökumaður kærður Vætusamt veður fram undan víðast hvar Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Trump yfirgefur landið Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Rúður sprungu í 400 gráðu hita Nýjast á mbl.is » Slysið varð í brattri hlíð Óvænt sagt upp störfum á Hlíðarenda Laxveiðin með rólegra móti í sumar Nottingham Forest horfir til Liverpool Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ Umræðan Öldruðum tryggð réttarbót Forsendur þjóðlegrar ritmenntar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Trump yfirgefur landið Vætusamt veður fram undan víðast hvar Framkvæmd sem margborgaði sig Mest lesið Í gær Í vikunni Skuldar þjóðinni skýringar Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Bindur vonir við virkjun Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Framkvæmd sem margborgaði sig 16 ára ökumaður kærður Vætusamt veður fram undan víðast hvar Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Trump yfirgefur landið Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Rúður sprungu í 400 gráðu hita

Share this article