Á heildina litið var veiðin dræm síðasta sumar, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Frá aldamótum hefur heildarveiðin einungis fjórum sinnum verið lakari. Meðalveiðin í þeim 50 ám sem fjallað er um hér var 97 laxar á stöng samanborið við 121 lax sumarið 2024. Af þeim 50 ám sem fjallað í sérblaðinu Veiði , sem fylgdi Viðskiptablaðinu, var einungis ein með yfir 200 laxa á stöng á stöng síðasta sumar. Er þetta mikil breyting frá árinu 2024 þegar sex laxveiðiár voru yfir þessu marki. Veiðin jókst á milli ára í 8 af 48 ám, en tölur fyrir Sogið og Ormarsá fyrir sumarið 2024 liggja ekki fyrir. Hér er listi yfir 5 bestu árnar. Áskrifendur geta skoðað lista yfir 50 bestu árnar hér . Í Ytri-Rangá (hafbeitará) veiddust 298 laxar á stöng síðasta sumar og í Selá í Vopnafirði veiddust 194 laxar á stöng. Þessar tvær eru í nokkrum sérflokki. Árið 2020 var Ytri-Rangá í 13. sæti á þessum lista en frá 2021 hefur hún verið í 2. til 6. sæti á listanum. Selá í Vopnafirði hefur verið mjög ofarlega á þessum lista síðustu ár. Sem dæmi var hún á toppnum fyrir tveimur árum. Í Urriðafossi í Þjórsá veiddust 179 laxar á stöng. Eftir að byrjað var að skrá tölur yfir stangaveiði í Urriðafossi árið 2017 hefur þetta svæði í Þjórsá verið við toppinn flest ár þegar miðað er við veiði á stöng. Í Eystri-Rangá (hafbeitará) veiddust 175 laxar á stöng í fyrra. Eystri-Rangá hefur verið í smá lægð undanfarin ár eftir að hafa toppað sumarið 2020 með 553 laxa á stöng. Í Laxá í Dölum veiddust 153 laxar á stöng síðasta sumar, sem er mjög gott og þá sérstaklega miðað við að almennt var laxveiði á Vesturlandi léleg. Laxá í Dölum hefur oft verið mjög ofarlega á þessum lista. Sem dæmdi veiddust 323 laxar á stöng í ánni árið 2016 og það ár var hún í 3. sæti listans. Þar næst koma Ormarsá og Elliðaárnar en báðar eru með veiði upp á 144 laxa á stöng. Ormarsá er ný inn á þennan lista því heil sex ár eru síðan veiðitölur úr ánni voru síðast gerðar opinberar en það var árið 2019. Veiðin í Elliðaánum hefur verið glettilega góð síðustu ár og hefur þessi á í miðri Reykjavíkurborg oftsinnis verið á topp tíu listanum. Mikill samdráttur í Andakílsá Hlutfallslega jókst veiðin mest í Fnjóská en þar veiddust 22 laxar á stöng sumarið 2024 samanborið við 48 síðasta sumar. Er þetta 115% aukning á milli ára. Hlutfallslega dróst veiðin mest saman í Andakílsá en þar veiddust 53 laxar á stöng síðasta sumar samanborið við 263 sumarið 2024. Er þetta 80% samdráttur á milli ára. Þess má geta að Andakílsá var á toppi listans árið 2020 með 661 laxa á stöng. Nánar er fjallað um málið í sérblaðinu Veiði , sem fylgdi Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta skoðað lista yfir 50 festu árnar og greinina í heild hér .