Aldrei hafa jafn margir laxar gengið í Elliðaár og göngumet var sett í gær þegar tæplega sex hundruð laxar renndu sér í gegnum teljarann á tólf klukkustundum. Teljarinn var settur upp árið 1989. Þetta lofar því góðu fyrir laxveiðisumarið í Elliðaánum en það hefur farið hægt af stað víða á landinu. Elliðaárnar skera sig úr Árleg vöktun á laxgengi í Elliðaánum hefur verið frá árinu 1989. Jóhannes Sturlaugsson, líffræðingur, fylgist vel með talningunni og sá í gær í hvað stefndi. „Skemmtilegu fréttirnar eru þær að það er göngumet á sólarhringsgrunni.“ Talningin fer þannig fram að laxarnir renna sér í gegnum teljara, sem er í ánni. Laxarnir eru myndaðir og stærðarmældir og Jóhannes segir að stærstu laxarnir séu um 90 cm langir. „Við erum að tala um að á hálfum sólarhring var að meðaltali einn lax nánast að fara í gegnum teljarann á mínútu,“ segir Jóhannes. Jóhannes segir nokkrar ástæður vera fyrir göngumetinu í ánni. Síðustu ár hefur veiðimönnum verið gert að sleppa veiddum löxum. Þannig hrygna fleiri, komast aftur út í sjó og svo aftur í ána. Auk þess var orkuöflun með virkjun í ánni lögð af og opnað á ný fyrir Árbæjarstífluna. Að mati Jóhannesar hafa þær aðgerðir leitt til þess að Elliðaárnar eru orðnar einstakar í samanburði við aðrar laxveiðiár. „Hér eru bestu endurheimtur úr sjó á Atlantshafslaxi í veröldinni.“ Töfrar í Elliðaánum Jóhannes segir suðvesturhorn landsins vera hentugt fyrir veiði en að aðrar ár séu ekki á pari við Elliðaárnar. „Elliðaárnar hafa ákveðið umfram aðrar og ekki er það nú vegalengdin, framleiðslusvæðið er nú ekki stórt en það er afskaplega frjósamt.“ Í fyrra gengu 3400 laxar í ána yfir allt sumarið. Það sem af er sumri hafa 2000 laxar gengið, af þeim eru um 100 sjóbirtingar. Jóhannes segir spennu í loftinu og á jafnvel von á að sumarið í ár verði gjöfulla en í fyrra. „Það sem gekk á á 12 klukkutímum hérna; það væru flestar laxveiðiár á Íslandi ánægðar með það sem sumarveiðina. Þannig það er ekki hægt að kvarta hérna í Elliðaánum.“ Elliðaárnar í Reykjavík skera sig úr í samanburði við aðrar laxveiðiár hvað laxagengd varðar. Áin kraumar af laxi.