Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verra gengi blandaðra sjóða

Read Full Article →

Þegar horft er til blandaðra sjóða má sjá að í fimm efstu sætunum eru fjórir sjóðir af fimm á vegum Íslandssjóða með bestu ávöxtunina á síðasta ári. IS Einkasafn A (fl. B) fremstur í flokki með 8,22% ávöxtun. Sjóðurinn er fyrir fjárfesta sem eru með samning um eignastýringu eða fjárfestingarráðgjöf við Íslandsbanka. Á heimasíðu sjóðsins kemur fram að markmið sjóðsins er annars vegar að verja höfuðstól hlutdeildarskírteinishafa og hins vegar að auka verðmæti hans með því að ávaxta fjármuni sjóðsdeildarinnar á virkan hátt í innlendum og erlendum fjármálagerningum. Sjóðsdeildin fjárfestir í hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða, sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta og annarra sérhæfðra sjóða, auk þess að fjárfesta í stökum fjármálagerningum og innlánum í samræmi við fjárfestingastefnu. Þar á eftir koma Landsbréf – Einkabréf A, sem fjárfestir í innlendum og erlendum skuldabréfum, peningamarkaðsgerningum og innlánum eða í hlutdeildarskírteinum sjóða sem fjárfesta í megindráttum í framangreindum eignaflokkum. Sjóðurinn er ætlaður viðskiptavinum einkabankaþjónustu Landsbankans en hann var með 8,04% ávöxtun í fyrra. Skammt undan kom IS Einkasafn A (fl. A) með 7,84% ávöxtun. Eftir tvö ár í röð þar sem aðeins einn blandaður sjóður skilaði neikvæðri ávöxtun versnaði staðan nokkuð hressilega á síðasta ári. Þannig skiluðu fimmtán blandaðir sjóðir neikvæðri ávöxtun í fyrra. Staðan var þó öllu betri en árið 2022 þegar allir blandaðir sjóðir nema einn skiluðu neikvæðri ávöxtun. Þegar litið er til síðastliðinna fimm ára, frá 2021-2025, er nafnávöxtun blandaðra sjóða á ársgrundvelli að meðaltali 4%. Þar var IS Einkasafn Erlent (ISK fl. B), á vegum Íslandssjóða, með bestu nafnávöxtun á ársgrundvelli á tímabilinu upp á 5,78%. Eins og aðrir sjóðir hjá Íslandssjóðum sem eru í flokki B er þessi sjóður fyrir fjárfesta sem eru með samning um eignastýringu eða fjárfestingarráðgjöf við Íslandsbanka. Þar á eftir kemur annar sjóður á vegum Íslandssjóða, IS Einkasafn E (fl. B), með 5,67% ávöxtun. Í blönduðu sjóðunum í fyrra voru það þeir sjóðir sem fjárfesta fyrst og fremst í skuldabréfum sem stóðu sig best, enda var hlutabréfamarkaðurinn eins og þegar hefur verið farið yfir ekkert sérlega gjöfull á síðasta ári. Efstu sjóðirnir: Premía A, IS Einkasafn A, Landsbréf – Einkabréf A, IS Eignasafn - ríki og sjóðir, eiga það allir sameiginlegt að vera með 0% hlutfall hlutabréfa í eignasamsetningu sinni. Stærsti blandaði sjóðurinn er Landsbréf - Einkabréf B, með 24,6 milljarða króna eignir í stýringu. Þar á eftir kemur Landsbréf Einkabréf C með 19 milljarða í stýringu og Landsbréf Einkabréf D með 11,8 milljarða í stýringu, að því er kemur fram á Keldunni. Nánar er fjallað um málið í veglegu tímariti Frjálsrar verslunar , áskrifendur geta lesið greina hér . Hægt er að kaupa ritið hér .

Share this article